Rafmagnslaust við Bókhlöðustíg

Unnið er að viðgerðum og er vonast til þess að …
Unnið er að viðgerðum og er vonast til þess að rafmagn verði komið aftur á innan stundar. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Rafmagnslaust er í hluta miðbæjar Reykjavíkur vegna háspennubilunar sem varð um hálfsjöleytið í kvöld. Unnið er að viðgerðum og er vonast til að rafmagn verði komið aftur á innan stundar.

Þetta segir í tilkynningu á veitur.is.

Uppfært klukkan 20:00

Allir ættu að vera komnir með rafmagn nema Bókhlöðustígur og nærliggjandi götur.

Fólki er bent á að slökkva á þeim rafmagnstækjum sem ekki slökkva sjálf á sér og geta valdið tjóni er rafmagn kemur á að nýju. Á það sérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Þá er fólki einnig ráðlagt að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert