Einn heppinn miðaeigandi vann fyrsta vinning í EuroJackpot. Vinningurinn hljóðar upp á 15,2 milljarða króna. Miðinn var keyptur í Þýskalandi.
Fimm unnu annan vinning og fá yfir 18 milljónir króna í sinn hlut. Þeir miðar voru keyptir í Danmörku, Finnlandi og loks þrír frá Þýskalandi.
Fjórtan vinningshafar fengu þriðja vinning sem skilar þeim 1,3 milljónum á mann en enginn þeirra var frá Íslandi. Einungis einn fékk annan vinning í Jókertölunum sem skilar honum 100 þúsund krónur.