Skora á íslensk stjórnvöld að banna strax einangrun á börnum Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. janúar 2023 11:05 Fangaklefi á Litla-Hrauni. Vísir/vilhelm Íslensk stjórnvöld fremja mannréttindabrot með óhóflegri beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi, samkvæmt svartri skýrslu Amnesty International. Framkvæmdastjóri samtakanna á Íslandi segir ítrekuð einangrunarvist barna sérstaklega sláandi og skorar á stjórnvöld að banna hana tafarlaust.
Skýrsla Amnesty International er áfellisdómur yfir íslensku dómskerfi, að mati samtakanna. Í henni kemur fram að árið 2021 hafi sex af hverjum tíu gæsluvarðhaldsföngum sætt einangrunarvist á Íslandi. Frá 2012 til 2021 hafi 99 sætt langvarandi einangrunarvist, þ.e. lengur en í 15 daga, og dæmi séu um að grunaðir hafi sætt einangrun í gæsluvarðhaldi í tæpa tvo mánuði, sem samtökin telja skýrt mannréttindabrot. Dómarar hafi í 99 prósent tilvika fallist á einangrunarvist í gæsluvarðhaldi á árunum 2016-2018, iðulega á grundvelli rannsóknarhagsmuna. „Amnesty international er alfarið á móti því að beita slíku úrræði í þágu rannsóknar þar sem hægt er að beita vægari úrræðum. Til dæmis með því að takmarka símanotkun, takmarka heimsóknir, aðskilja fanga,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Grafalvarleg einangrun barna Samtökin skora á íslensk stjórnvöld að breyta lögum og framkvæmd á beitingu einangrunarvistar, sérstaklega þegar kemur að börnum. „Það er grafalvarlegt mál. Á tíu ára tímabili hafa tíu börn sætt einangrunarvist í gæsluvarðhaldi. Einangrunarvist er gríðarlega íþyngjandi úrræði. Þannig að við skorum á íslensk stjórnvöld að breyta þarna tafarlaust og banna alfarið einangrunarvist á börn, sem og fólk í viðkvæmri stöðu,“ segir Anna. Lítið þið á þetta sem pyntingar, mannréttindabrot? „Þetta er skýrt brot á samningi sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum og annarri illri meðferð, þannig að já. Þetta er mannréttindabrot.“ Af hverju er þetta svona hér? Af hverju hefur skapast þessi hefð? „Það er kannski erfitt að leggja mat á það en það er einhvern veginn hvernig kerfið hefur byggst upp, einhver viðtekin venja. Og þetta því miður er þá orðin einhvers konar meginregla,“ segir Anna.
Fangelsismál Mannréttindi Réttindi barna Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Langt í að þeir nái sér að fullu Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Sjá meira