Einn sjúklingur liggur nú á smitsjúkdómadeild Landspítalans en alls eru 220 manns í eftirliti á Covid-göngudeildinni, þar af 15 börn. Þetta kemur fram í tilkynningu sem deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans sendi út. Þá kemur einnig fram að fjórir starfsmenn spítalans séu í einangrun, 5 í sóttkví A og 115 í sóttkví C.
Farsóttanefnd, framkvæmdastjórn og forstöðumenn spítalans ákváðu á fundi í hádeginu í dag að halda áfram að auka sóttvarnarráðstafanir á spítalanum. Er það gert í því skyni að draga úr líkum á að smit berist inn í starfsemina.
Nú þegar hafa eftirfarandi ráðstafanir verið gerðar og tekið gildi:
Frá og með deginum í dag, 21. júlí, gildir eftirfarandi til viðbótar:
Að lokum er minnt á að enn gildir sú meginregla að starfsmaður sem fer í einkennasýntöku vegna COVID-19 skal vera heima þar til niðurstaða liggur fyrir. „Ljóst er að nú um hásumarið getur þessi ráðstöfun skapað öryggisógn vegna manneklu. Í þeim tilvikum getur stjórnandi/vaktstjóri ráðfært sig við farsóttanefnd um hvað sé til ráða. Farsóttanefnd er að skoða möguleika á að taka upp hraðpróf og verður nánar greint frá því síðar,“ segir í tilkynningunni.
„Farsóttanefnd vill á þessum viðsjárverðu tímum mildilega beina þeim tilmælum til starfsfólks Landspítala að það gæti sín vel í samfélaginu; forðist fjölmenn mannamót, skemmtistaði, veislur og viðburði sem hafa oft leitt til mikillar dreifingar smits. Nú er rétti tíminn til að búa til „sumarkúlu“ og hafa það notalegt með sínum nánustu.“