„Það að stjórnandi láti af störfum er ekki neyðarástand“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. nóvember 2021 06:27 Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. „Rakel er ekki hætt, hún sinnir starfi sínu sem fréttastjóri til áramóta og í kjölfarið verður auglýst eftir fréttastjóra,“ segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri í svari við fyrirspurn Vísis um það hvers vegna ekki verður auglýst í stöðu fréttastjóra RÚV fyrr en eftir áramót.
Greint var frá því 9. nóvember síðastliðinn að Rakel Þorbergsdóttir hefði ákveðið að segja starfi sínu lausu um áramótin. Rakel hefur verið fréttastjóri Ríkisútvarpsins í átta ár en í frétt RÚV var greint frá því að Heiðar Örn Sigurfinnsson yrði starfandi fréttastjóri frá og með 1. janúar og þar til nýr fréttastjóri yrði ráðinn. Þá sagði að starfið yrði auglýst laust til umsóknar fljótlega á nýju ári. Vísir sendi RÚV fyrirspurn vegna málsins og spurði þriggja spurninga: Hvers vegna starfið yrði ekki auglýst fyrr en Rakel yrði hætt, hvort ekki væri eðlilegra að vera búin að finna einhvern til að taka við og hvort verið væri að bíða eftir einhverju. Kolbrún Vaka Helgadóttir, upplýsingafulltrúi RÚV, svaraði spurningunum ekki beint heldur endurtók það sem kom fram í frétt RÚV. Benti hún á útvarpsstjóra ef óskað væri svara beint frá honum. Þegar sömu spurningar voru sendar á útvarpsstjóra sagði hann engu við þetta bæta; Rakel væri ekki hætt en auglýst yrði eftir fréttastjóra þegar hún væri hætt. Vísir ítrekaði þá spurninguna; af hverju ekki að auglýsa stöðuna fyrr, fyrst vitað væri að Rakel væri að hætta um áramótin? Af hverju að bíða eftir að hún hætti og auglýsa svo? „Tímasetningin er skýr og miðast við starfslokin sem eru um áramótin. Það að stjórnandi láti af störfum er ekki neyðarástand sem kallar á einhvern asa, í þessu eins og öllu öðru hjá RÚV vöndum við til verka,“ svaraði þá Stefán.
Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Tengdar fréttir Rakel Þorbergsdóttir hættir sem fréttastjóri á Ríkisútvarpinu Rakel Þorbergsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem fréttastjóri á Ríkisútvarpinu. Hún hættir um áramót. Ekki er gefin upp ástæða fyrir því hvers vegna þessi ákvörðun liggur fyrir. 9. nóvember 2021 13:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira
Rakel Þorbergsdóttir hættir sem fréttastjóri á Ríkisútvarpinu Rakel Þorbergsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem fréttastjóri á Ríkisútvarpinu. Hún hættir um áramót. Ekki er gefin upp ástæða fyrir því hvers vegna þessi ákvörðun liggur fyrir. 9. nóvember 2021 13:33