Valsarar fóru meistarahringinn á þremur árum Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2022 14:01 Valsarar hafa unnið Íslandsmeistaratitla í handbolta, fótbolta og körfubolta, bæði hjá körlum og konum, á árunum 2019-2022. Alls eru Íslandsmeistaratitlarnir átta á þessum árum en gætu mögulega orðið tíu áður en maí er úti og tólf í haust þegar fótboltaleiktíðinni lýkur. vísir/daníel/hulda margrét/bára/egill Valsarar hafa landað Íslandsmeistaratitlum í öllum þremur stóru boltagreinunum á síðustu þremur árum, bæði í karla- og kvennaflokki.
Sigur Vals gegn Tindastóli í gærkvöld, og þar með fyrsti Íslandsmeistaratitill karlaliðs Vals í körfubolta í 39 ár, þýðir að félagið getur mögulega endað með tólf Íslandsmeistaratitla á árunum 2019-2022 í meistaraflokki í körfubolta, handbolta og fótbolta. Félagið hefur þegar unnið átta Íslandsmeistaratitla á aðeins þessum þremur síðustu árum og biðin eftir Íslandsmeistaratitli í körfubolta karla var orðin sú langlengsta hjá liðunum sex í Val. Kvennaliðið í körfubolta vann sína fyrstu tvo Íslandsmeistaratitla 2019 og 2021 og hefur einnig unnið bikarmeistaratitil og þrjá deildarmeistaratitla á þessum tíma, en um er að ræða fyrstu stóru titlana í sögu kvennaliðsins. Karlalið Vals í körfubolta hefur nú orðið Íslandsmeistari alls þrisvar og bikarmeistari jafnoft en liðið þurfti að bíða í 39 ár eftir að hafa unnið tvöfalt árið 1983. Handboltaliðin berjast um titla Bæði kvenna- og karlalið Vals eru komin í úrslitaeinvígin í handboltanum og geta því bætt Íslandsmeistaratitlum í sitt stóra safn. Karlalið Vals byrjar einvígið gegn ÍBV í kvöld og kvennaliðið mætir Fram í fyrsta leik á morgun. Karlalið Vals í handbolta er ríkjandi Íslandsmeistari og hefur unnið titilinn langoftast eða 23 sinnum, og varð í vetur bikarmeistari í 11. sinn sem er einnig met á Íslandi. Kvennalið Vals í handbolta varð síðast Íslandsmeistari 2019 og getur landað titlinum í 18. sinn takist liðinu að vinna Framkonur. Valskonur urðu einnig bikarmeistarar 2019 og hafa unnið þann titil sjö sinnum. Ríkjandi Íslandsmeistari í þremur greinum Í sumar þykja svo bæði karla- og kvennalið Vals líkleg til afreka í fótboltanum. Kvennaliðið er ríkjandi Íslandsmeistari og á næstflesta Íslandsmeistaratitla á eftir Breiðabliki, eða 12, auk 13 bikarmeistaratitla þar sem Valur deilir metinu með Blikum. Valur er því ríkjandi meistari í körfubolta og handbolta karla, og fótbolta kvenna. Karlaliðið í fótbolta varð Íslandsmeistari þrisvar á árunum 2017-2020 og hefur alls unnið titilinn 23 sinnum, næst á eftir KR sem á 27 Íslandsmeistaratitla. Liðið á 11 bikarmeistaratitla eftir að hafa síðast unnið bikarkeppnina 2016.
Körfubolti Handbolti Fótbolti Valur Subway-deild kvenna Subway-deild karla Olís-deild karla Olís-deild kvenna Besta deild kvenna Besta deild karla Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Elvar stigahæstur í grátlegu tapi „Ég á von á því að það verði allt önnur tónlist hjá þeim í Grikklandi“ „Ef við þolum þann þrýsting sem verður í Grikklandi eigum við skilið að verða Evrópumeistarar“ Aníta tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Sjá meira