Umfangsmestu krónukaup Seðlabankans á þessari öld

Seðlabankinn hefur aldrei keypt jafnmikið af krónum á þessari öld og í síðasta mánuði. Tvær af hverjum þremur krónum sem seldar voru á gjaldeyrismarkaði voru keyptar af Seðlabankanum í október.

Húsnæði Seðlabanka Íslands
Húsnæði Seðlabanka Íslands
Auglýsing

Kaup Seðla­bank­ans á íslenskum krónum til að styrkja gengi hennar námu 38 millj­örðum í októ­ber, en það eru umfangs­mestu krónu­kaup bank­ans í að minnsta kosti 20 ár. Inn­gripin voru 66 pró­sent af heild­ar­velt­unni á gjald­eyr­is­mark­aði og eru það einnig mestu ítök bank­ans á heild­ar­mark­aði í nokkur ár. 

Þetta kemur fram í tölum Seðla­bank­ans um gjald­eyr­is­kaup. Sam­kvæmt töl­unum voru kaupin líka  umfangs­mikil í sept­em­ber og ágúst á þessu ári, en þá námu þau 25 og 16 millj­örðum króna. Leita þarf aftur til tíma banka­hruns­ins í októ­ber og nóv­em­ber 2008 til að finna kaup á krónum af því­líkri stærð­argráðu, en þá keypti hann 21 og 29 millj­arða króna. 

Heimild: Seðlabanki Íslands

Líkt og sjá má á mynd hér að ofan hefur umfang gjald­eyr­is­inn­gripa auk­ist hratt frá byrjun heims­far­ald­urs­ins síð­asta mars, en Seðla­bank­inn hvorki keypti né seldi krónur í jan­úar eða febr­úar á þessu ári. Umfangið var þó nokkuð minna í vor og fyrri hluta sum­ars­ins, en þá var hlut­deild bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aðnum á milli 20 og 40 pró­sent. Í ágúst og sept­em­ber var bank­inn svo með helm­ing allra við­skipta á gjald­eyr­is­mark­aðn­um, en hlut­fallið var komið upp í tvo þriðju í október. 

Auglýsing

Á síð­asta vaxta­á­kvarð­ana­fundi 18. nóv­em­ber sagði Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri að bank­inn hafi þurft að beita inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði til að halda gengi krón­unnar stöð­ugu. Til við­bótar við þessi inn­grip hefur bank­inn stundað reglu­bundin kaup á 27,3 millj­örðum króna frá 14. sept­em­ber til að auka dýpt gjald­eyr­is­mark­að­ar­ins. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent