Freista þess að vernda síðasta hvíta gíraffann Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. nóvember 2020 23:27 Karldýrið er talið vera síðasti hvíti gíraffinn í heiminum. ISHAQBINI HIROLA COMMUNITY CONSERVANCY
Dýraverndunarsamtök hafa sett staðsetningarbúnað á síðasta hvíta gíraffann í heiminum en markmiðið er að vernda dýrið fyrir veiðiþjófum. Veiðiverðir munu fylgjast með ferðum gíraffans í rauntíma. Um er að ræða karldýr sem þjáist af sjaldgæfri genabreytingu sem kallast leucism en hún gerir það að verkum að ekkert litarefni er í feld skepnunnar. Í mars síðastliðnum drápu veiðiþjófar hvítt kvendýr og sjö mánaða gamlan kálf úr sömu fjölskyldu og óttast er að karldýrið muni mæta sömu örlögum. Hræ kvendýrsins og kálfsins fundust á verndarsvæði í Garissa-sýslu í Kenía, þar sem karldýrið dvelur nú einn. Hræ kvendýrsins og kálfsins fundust í mars sl. Þau höfðu verið drepin af veiðiþjófum.ISHAQBINI HIROLA COMMUNITY CONSERVANCY Það sást fyrst til hvítra gíraffa í Kenía í mars 2016, tveimur mánuðum eftir að þeir sáust í Tanzaníu. Ári síðar komust þeir aftur í fréttirnar þegar mynd náðist af móður og kálfi. Gíraffa er að finna í 15 Afríkuríkjum en þeir eru hæsta spendýr jarðar. Veiðiþjófar drepa dýrin og hirða feldinn, kjötið og ákveðna líkamshluta. Talið er að gíröffum hafi fækkað um 40% á síðustu þrjátíu árum, m.a. vegna veiðiþjófnaðar. Þeir telja nú um 68 þúsund skepnur á heimsvísu. BBC greindi frá.
Kenía Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira