Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. október 2020 16:15 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsund kindur og lömb. Jón Kolbeinn Jónsson, héraðsdýralæknir Norðurlands, segir í samtali við Vísi að endanleg niðurstaða liggi ekki fyrir fyrr en seint á þriðjudag. Riða hafi greinst á bæjunum þremur, úr gripum sem ýmist voru keyptir eða gefnir frá Stóru-Ökrum. „Núna erum við að vinna í því að hafa samband við þá bændur sem hafa fengið gripi frá þessum bæjum,“ segir Jón Kolbeinn. Óttaslegnir bændur Fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að bóndinn á Stóru-Ökrum í Akrahreppi neyðist til að farga hátt í 800 kindum vegna riðu sem greindist á bænum. Þá væru bændur á nærliggjandi svæðum óttaslegnir því smit væri orðið útbreitt. Gripasala á milli bæja innan Tröllaskagahólfsins hefur tíðkast, enda hefur riðuveiku ekki greinst í hólfinu í heil tuttugu ár. Nú liggur fyrir að riða hefur greinst á þremur bæjum til viðbótar. Á Grænumýri þar sem eru um 1100 fjár, á Hofdölum sem er með um 750 fjár og loks á Hofi þar sem kindur eru nokkuð færri eða um 260. Bæirnir eru allir í Tröllaskagahólfi og segir Jón Kolbeinn allt gert til að hefta frekari útbreiðslu. Sýnataka sé framundan á öllu gripum sem hafi komið frá Stóru-Ökrum. Rakning standi yfir og þar hjálpi að heilt yfir haldi bændur góða skrá yfir flutninga. Förgun hræjanna flöskuháls Vandamál verður hvernig öllum hræjunum, sem stefnir í að verði hátt í þrjú þúsund, verði fargað. „Það er flöskuhálsinn í þessum niðurskurði, að koma þessum hræjum frá.“ Það þurfi að vinna hratt enda aukist smit á bæjum með tímanum meðan sjúkir gripir eru á bæjunum. Hann nefnir einnig að misjafnt sé í hve miklum tengslum gripirnir séu hver við aðra. „Við þurfum að færa rök fyrir öllum ákvörðunum,“ segir Jón Kolbeinn. Reiðarslag fyrir bændur „Við reynum að stíga frekar varlega en þó fast til jarðar þegar við erum nokkuð viss í okkar sök.“ Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri í Skagafirði, sagði í fréttum okkar í hádeginu merkja miklar áhyggjur hjá bændum. „Ég er heyrt í mörgum bændum og það eru margir áhyggjufullir og margir sorgmæddir yfir þessu. Sauðfjárrækt er mikil byggðafestubúgrein og þetta er högg. Það er ekkert hægt að neita því og fyrir bændur sem hafa lagt líf og sál í ræktunarstarf eins og í þessu tilfelli á Stóru-Ökrum, þetta er náttúrulega mikið reiðarslag,“ sagði Sigfús. RÚV greindi fyrst frá. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landbúnaður Akrahreppur Skagafjörður Dýraheilbrigði Riða í Skagafirði Tengdar fréttir Riðuveikin mikið reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið Bændur í Skagafirði bíða nú milli vonar og ótta eftir niðurstöðum úr sýnatöku eftir að riða greindist í ær á Stóru-Ökrum á dögunum. Sveitarstjórinn segir málið vera mikið högg og reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið. 23. október 2020 14:23 Riða í Skagafirði staðfest Riða á bænum Stóru-Ökrum 1 í Akrahreppi í Skagafirði hefur verið staðfest. 22. október 2020 12:11 Sterkur grunur um riðuveiki í Akrahreppi Sterkur grunur er um riðuveiki á Stóru-Ökrum 1, Brekkukoti, í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun hefur sett bann á allan flutning líffjár, þ.e. sauð- og geitfjár innan Tröllaskagahólfs til bráðabirgða þar til greining hefur verið staðfest. 16. október 2020 15:19 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira
Riðuveikin mikið reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið Bændur í Skagafirði bíða nú milli vonar og ótta eftir niðurstöðum úr sýnatöku eftir að riða greindist í ær á Stóru-Ökrum á dögunum. Sveitarstjórinn segir málið vera mikið högg og reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið. 23. október 2020 14:23
Riða í Skagafirði staðfest Riða á bænum Stóru-Ökrum 1 í Akrahreppi í Skagafirði hefur verið staðfest. 22. október 2020 12:11
Sterkur grunur um riðuveiki í Akrahreppi Sterkur grunur er um riðuveiki á Stóru-Ökrum 1, Brekkukoti, í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun hefur sett bann á allan flutning líffjár, þ.e. sauð- og geitfjár innan Tröllaskagahólfs til bráðabirgða þar til greining hefur verið staðfest. 16. október 2020 15:19