Reyndi að nema barn á brott: Stúlkan stóð sig eins og „ofurhetja“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. júní 2021 11:15 Atvikið átti sér stað á leiksvæði við Funafold. Mynd/Google Maður gerði tilraun til að nema sjö ára stúlku á brott í gærkvöldi, á leikvelli í Funafold. Faðir stúlkunnar telur líklegt að verknaðurinn hafi verið skipulagður fyrirfram en stúlkan brást hárrétt við og tókst að hrekja manninn á brott.
Stúlkan var á leikvellinum með systkinum sínum þegar atvikið átti sér stað. Þegar þau brugðu sér frá til að fara á salernið kom maðurinn gangandi og bauð stúlkunni að koma að sjá hundana sína. „Hún sagði nei og þá brást hann þannig við að hann grípur utan um hana, lyftir henni upp og heldur henni að sér. Þá brestur hún í reiðigrát og gefur honum hnéspark í punginn,“ segir faðir stúlkunnar, Ragnar Örn Ottósson. Manninum virðist bregða við öskur og mótþróa stúlkunnar og lét sig hverfa. „Hann tekur á sprettinn í burtu. Það kom maður að sem sá hann ekki en sá í afturendann á honum og þá var hann á fleygiferð,“ segir Ragnar. Hann segir leit að manninum hafa farið strax af stað og lögreglu borið að garði um fimm mínútum eftir að atvikið. Ekkert hafi hins vegar sést til mannsins, sem Ragnar segir vekja grunsemdir um að tilraunin hafi verið skipulögð fyrirfram. Stúlkan gat gefið góða lýsingu af manninum; hann var dökkhærður með brún augu, um það bil 170 til 180 cm, klæddur grárri peysu og gráum íþróttabuxum. Þá er hann með bólur og freknur. Hefur þegar heyrt af öðru áþekku atviki Ragnar segist ekki síst vilja koma málinu á framfæri til að freista þess að fá fólk til að kanna hvort atvikið hafi mögulega náðst á eftirlitsmyndavélar í nágrenninu. Hann furðar sig á því að það sé ekki að minnsta kosti ein myndavél við hvern leikvöll. „Maður veltir því fyrir sér af hverju það er ekki hægt að setja upp einhverjar digital myndavélar á svona leiksvæðum,“ segir hann og bendir á að myndavélar hafi verið settar upp við grunnskóla. Ragnar er þakklátur lögreglu fyrir að bregðast skjótt við og taka málið alvarlega. Hún kannaðist ekki við önnur mál af þessu tagi en Ragnar hefur þegar fengið símtal frá konu sem sagði dóttur sína hafa lent í svipuðu. „Það var maður sem nálgaðist stúlku með hund og gaf henni ís. Svo bauð hann henni að koma seinna og sagðist þá ætla að gefa henni pening,“ segir hann um lýsingu konunnar. Dóttur Ragnars líður ágætlega og segir hann fjölskylduna hafa lagt áherslu á að hrósa henni fyrir að standa sig vel í erfiðum aðstæðum. Þau vilji ræða málin og benda henni á að hún hafi staðið sig eins og ofurhetja, frekar en að fela umræðuna fyrir henni. Það séu frekar foreldrarnir sem nú séu uggandi gagnvart því að leyfa börnunum sínum að leika sér úti án eftirlits. „Þetta mun taka einhvern tíma,“ segir Ragnar. „Þetta er orðið slæmt þegar maður getur ekki sent barnið sitt út á róló á Íslandi.“ Fréttin hefur verið uppfærð með klippu með viðtali við Ragnar í Reykjavík síðdegis.
Lögreglumál Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Sjá meira