Varði vel og fyrstu stigin í hús

Elín Jóna Þorsteinsdóttirver mark Ringköbing.
Elín Jóna Þorsteinsdóttirver mark Ringköbing. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Elín Jóna Þorsteinsdóttir landsliðsmarkvörður í handknattleik lagði sitt að mörkum í kvöld þegar Ringköbing fékk sín fyrstu stig í dönsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Ringköbing, sem er nýliði í deildinni, hafði tapað fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu en lagði í kvöld lið Köbenhavn, 28:27, í spennuleik á heimavelli og komst með því úr botnsætinu. Elín varði mark liðsins nær allan tímann og varði 12 skot en hún var með 32 prósent markvörslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert