Fótbolti

Ísland mun hrynja niður FIFA-listann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Portúgalski dómarinn Fabio Jose Costa Verissimo lyfti hér rauða spjaldinu á Wembley í gær. Birkir Már Sævarsson var sendur í sturtu en á myndinni er fyrirliðinn Kári Árnason.
Portúgalski dómarinn Fabio Jose Costa Verissimo lyfti hér rauða spjaldinu á Wembley í gær. Birkir Már Sævarsson var sendur í sturtu en á myndinni er fyrirliðinn Kári Árnason. Getty/Ian Walton

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mun falla niður um sjö sæti á FIFA-listanum þegar hann verður gefinn út í næstu viku.

Spænski tölfræðingurinn Alexis Martín-Tamayo hefur reiknað út stöðu karlalandsliðanna á næsta styrkleikalista FIFA sem verður gefinn út eftir nákvæmlega eina viku.

Töpin þrjú hjá íslenska landsliðinu í þessum landsleikjaglugga þýða að íslenska liðið mun falla niður um sjö sætu á nýjum lista.

Ísland var í 39. sæti á síðasta lista en íslenska landsliðið mun verða í 46. sæti á næsta lista.

Ungverjar taka aftur á móti flott stökk á listanum og fara upp um átta sæti. Þeir setjast í 39. sæti eða sætið sem íslenska landsliðið var í fyrir þennan glugga.

Ungverjar komust á EM með sigri á Íslandi en þeir tryggðu sér líka sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Danir var upp um eitt sæti og komst upp í tólfta sætið. Englendingar eru áfram í fjórða sætinu.

Belgar verða áfram efstir og engin breyting er á efstu sex liðunum. Argentínumenn komast upp fyrir Úrúgvæ í sjöunda sætið og þá komast Mexíkó og Ítalía á topp tíu í staðinn fyrir Króatíu og Kólumbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×