Sérstaklega löng kosninganótt fram undan Snorri Másson skrifar 23. september 2021 22:31 Það þarf að flytja atkvæði landshlutanna á milli aðfaranótt sunnudags - og það getur alltaf tafist. Stöð 2 Landsmenn þurfa líklega að bíða langt fram á morgun eftir endanlegum niðurstöðum kosninganna um helgina. Slæm veðurspá og sögulegur fjöldi utankjörfundaratkvæða setja strik í reikninginn. Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu.
Spáin er að skána en veðrið verður í lykilhlutverki á laugardaginn. Ekki aðeins óttast fólk að vonda veðrið fæli fólk frá því að fara og kjósa, heldur gæti það einnig skapað töluverð vandræði um kvöldið þegar kemur að því að ferja atkvæðin frá kjördeildum landsins og á talningarstaði. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var í máli og myndum yfir umfangsmikla atkvæðaflutninga sem kjörstjórnir landsins þurfa að standa í aðfaranótt sunnudags: Þyrla og varðskip til taks Vanalega hafa Grímseyingar klárað að kjósa um hádegisbil og atkvæðin geta þá verið komin um miðjan dag til Akureyrar með skipi. Ef veðrið verður eins og verstu spár gera ráð fyrir gæti verið vandkvæðum bundið að sigla með atkvæðin í land og þá er verið að treysta á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Veðrið á að versna með kvöldinu á laugardag. Kjörstaðir loka klukkan tíu í Vestmannaeyjum en formaður yfirkjörstjórnar segir ekki líta vænlega út miðað við núverandi spár að flytja atkvæðin í land. „Það eru allir valkostir opnir, þeir eru að skipuleggja að það geti verið varðskip í nánd til að stíga inn og þyrlan mögulega líka,“ segir Þórir Haraldsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi, í samtali við fréttastofu. Langar vegalengdir með atkvæði Ekki er hægt að byrja að telja hin sögulega mörgu utankjörfundaratkvæði, sem í ár stefnir í að geti orðið fleiri en 40.000, fyrr en eftir lokun allra kjörstaða. Þegar fréttastofa ræddi við sýslumann á þriðja tíma í dag voru atkvæðin orðin 37.000. Atkvæðum frá Austfjörðum er venjulega öllum flogið frá Egilsstöðum en ef veður leyfir það ekki, þarf björgunarsveitin að flytja þau með bíl á Akureyri. Þá eru þau ekki að berast þangað fyrr en kannski um fjögur eða fimmleytið um nóttina. Í Suðurkjördæmi eru atkvæðin frá Höfn í Hornafirði ekki að skila sér á Selfoss fyrr en í fyrsta lagi um fjögur eða fimm um nóttina og í Norðausturkjördæmi eru atkvæðin frá Ísafirði og Sauðárkróki ekki að skila sér í Borgarfjörð fyrr en um svipað leyti. Þá fyrst er hægt að byrja að telja utankjörfundaratkvæðin. „Við reynum bara að standa mjög vel að verki. Vöndum okkur við þetta og gerum þetta vel. Það getur vel verið að það taki lengri tíma nú en oft áður og það verður þá bara svo að vera,“ sagði Þórir. En hversu mikið lengri tíma? Vísir hefur rætt við yfirkjörstjórnir um allt land, einn segir að við verðum að til sex, annar sjö og sá þriðji til allt að tíu. Það er ljóst að það er sérstaklega löng nótt í vændum - gleðileg rússíbanareið fyrir suma en hægfara vonbrigði fyrir aðra.
Alþingi Alþingiskosningar 2021 Suðurkjördæmi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent „Galið að fara svona með opinbert fé“ Innlent Hélt að pallurinn væri niðri og „þrumar á brúna og slítur hana niður“ Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Hafi líklega keyrt Yarisinn smá spotta og síðan skipt um bíl Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira