Líklegur kanslari farinn að herma eftir heimsfrægri líkamsstöðu Merkel Snorri Másson skrifar 27. september 2021 20:03 Til vinstri Olaf Scholz, líklega verðandi kanslari Þýskalands, til hægri Maximilian Conrad stjórnmálafræðiprófessor, og svo þarf ekki að segja neinum hver á hendurnar á myndinni úr þýska þinginu. Getty Images/Vísir Á meðan því er spáð hér á landi að sama ríkisstjórn haldi velli, virðast Þjóðverjar vera á leið inn í nýja tíma með jafnaðarmann í kanslarastólnum. Stjórnmálafræðiprófessor segir líkindi með því hvernig stjórnmálin hafa þróast á Íslandi og í Þýskalandi - en telur að ekki sé að vænta vinstrisveiflu af Olaf Scholz, sem sé þegar farinn að leika Angelu Merkel.
Niðurstöður kosninganna í Þýskalandi eru skýrar. Jafnaðarmenn bæta við sig 5,2 prósentum og kristilegir demókratar missa átta prósentustig. Báðir mætast þeir stórflokkarnir því í sömu stöðu, í kringum 25%. Eftir þetta afhroð hægrimanna, sem hafa ekki náð vopnum sínum eftir að Merkel hvarf af sviðinu, er ljóst að Þjóðverjar búa ekki við sama munað og Íslendingar - að fljóta rólega í faðm svipaðrar ríkisstjórnar. „Í dag, deginum eftir kosningar, getur maður engan veginn sagt til um hvernig stjórn verður mynduð. Núna þurfa flokkarnir bara að tala saman, en allir hafa þeir gefið út að þeir vilji ræða við alla flokkana,“ segir Maximilian Conrad, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, í samtali við fréttastofu. Mest hallast fólk að stjórn jafnaðarmanna með Frjálsum demókrötum og Græningjum, en viðræðurnar eiga það til að dragast á langinn, síðast tóku þær hálft ár, og á meðan starfar núverandi stjórn áfram. „Gárungarnir eru þegar farnir að grínast með þetta og einn blaðamaðurinn spurði í gær hvort það stefndi í að Angela Merkel flytti enn eitt nýársávarpið,“ segir Maximilian. Heimsfræg líkamsstaða Angelu Merkel Þjóðverjar fara ekki varhluta af þeirri alþjóðlegu þróun að smáflokkum fjölgar. „Maður sér þetta á Íslandi líka. Stjórnmálarófið er að verða brotakenndara, flokkarnir eru fleiri og minni, og það hefur auðvitað þær afleiðingar að stjórnarmyndunarviðræður verða sífellt flóknari enda þurfa fleiri að taka þátt í þeim.“ Kanslarinn fráfarandi hefur skilið eftir sig stórt skarð hjá kristilegum demókrötum.A.v.Stocki/ullstein bild - Getty Images Veldur þetta almennri vinstrisveiflu í þýskum stjórnmálum? „Nei það sé ég alls ekki fyrir mér. Í fyrsta lagi útiloka niðurstöður kosninganna að að jafnaðarmenn, græningjar og vinstrimenn myndi saman stjórn og því tel ég vinstrisveiflu ólíklega. Við það bætist að Olaf Scholz var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Merkel og hefur, í takti við það, viljað bjóða upp á órofið áframhald þeirra stjórnarhátta. Hann hefur meira að segja stillt sér upp sem hinum náttúrulega arftaka Angelu Merkel í kosningabaráttunni - og haldið á lofti tíglinum, hinum fræga látbragðstígli Angelu Merkel. Scholz hefur stundað tígulinn í kosningabaráttunni.“
Þýskaland Tengdar fréttir Sósíaldemókratar merja sigur í kosningunum en margt veltur á stjórnarmyndunarviðræðum Sósíaldemókratar hafa unnið nauman sigur í sambandsþingkosningunum í Þýskalandi, ef marka má fyrstu niðurstöður. Samkvæmt þeim hefur Sósíaldemókrataflokkurinn tryggt sér 25,7 prósent atkvæða en kristilegu íhaldsflokkarnir 24,1 prósent. 27. september 2021 06:47 Sósíaldemókratar missa dampinn og óljóst hver taki við keflinu af Merkel Óvíst er hver muni taka við keflinu af Angelu Merkel Þýskalandskanslara að loknum þingkosningum í Þýskalandi, sem fara fram á sunnudag. Nýjustu kosningaspár sýna að aðeins hársbreidd er á milli fylgis stærstu flokkanna. 24. september 2021 23:46 Vinstri sveifla skýtur þýskum millum skelk í bringu Þýskir auðkýfingar eru nú sagðir flytja eigur sínar til Sviss af ótta við að vinstri stjórn taki við eftir sambandsþingskosningar á sunnudag. Vinstriflokkarnir hafa boðað hækkun auðlegar- og erfðaskatts. 24. september 2021 15:48 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Sósíaldemókratar merja sigur í kosningunum en margt veltur á stjórnarmyndunarviðræðum Sósíaldemókratar hafa unnið nauman sigur í sambandsþingkosningunum í Þýskalandi, ef marka má fyrstu niðurstöður. Samkvæmt þeim hefur Sósíaldemókrataflokkurinn tryggt sér 25,7 prósent atkvæða en kristilegu íhaldsflokkarnir 24,1 prósent. 27. september 2021 06:47
Sósíaldemókratar missa dampinn og óljóst hver taki við keflinu af Merkel Óvíst er hver muni taka við keflinu af Angelu Merkel Þýskalandskanslara að loknum þingkosningum í Þýskalandi, sem fara fram á sunnudag. Nýjustu kosningaspár sýna að aðeins hársbreidd er á milli fylgis stærstu flokkanna. 24. september 2021 23:46
Vinstri sveifla skýtur þýskum millum skelk í bringu Þýskir auðkýfingar eru nú sagðir flytja eigur sínar til Sviss af ótta við að vinstri stjórn taki við eftir sambandsþingskosningar á sunnudag. Vinstriflokkarnir hafa boðað hækkun auðlegar- og erfðaskatts. 24. september 2021 15:48