Johnson segir litlar líkur á samningi Samúel Karl Ólason skrifar 16. október 2020 15:32 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. AP/Breska þingið/Jessica Taylor
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir að Bretar eigi að undirbúa sig fyrir að vera án fríverslunarsamnings við Evrópusambandið þann 1. janúar. Hann sakar ráðmenn í Brussel um að hafa „yfirgefið“ samningaviðræður við Breta og segir að þeir verði að breyta um stefnu. Annars séu viðræður tilgangslausar. Nái Bretar og ESB ekki saman fyrir áramótin eru líkur á því að breskar birgðakeðjur munu raskast verulega og verð hækka. Það mun jafnvel leiða til mikillar óreiðu þar. Það yrði þá á sama tíma og hagkerfi Bretlands hefur þegar tekið á sig mikið högg vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Í yfirlýsingu sagði Johnson í dag að Bretar muni undirbúa sig vel og í kjölfarið muni Bretland vaxa og dafna sem frjáls viðskiptaþjóð sem setji sín eigin lög. Í millitíðinni muni ríkisstjórn hans einbeita sér að því að berjast gegn faraldri nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Ríkisstjórn Johnson hefur gert breytingar á lögum sem eru í tra´ssi við alþjóðalög og og eru í raun breyting á útgöngusamningi sem ríkisstjórn hans var búin að gera við ESB. Johnson fundaði í dag með forsvarsmönnum ESB í gær og heldur hann því fram að sambandið vilji áfram hafa stjórn á lögum Bretlands og fiskimiðum. Það sé óásættanlegt. Hann sakar ESB sömuleiðis um að hafa neitað að semja af fullri alvöru. Eftir leiðtogafund ESB í Brussel í dag voru skilaboðin þaðan að þeir vildu að viðræður héldu áfram. Hins vegar þyrftu Bretar að endurhugsa einhverjar kröfur, samkvæmt frétt Reuters. Í kjölfarið sagði talsmaður Johnson að með þeim yfirlýsingum væri ESB í raun að stöðva viðræðurnar. Leiðtogar ESB eru þó ekki sannfærðir um það að viðræðum sé lokið og telja mögulegt að um samningabragð Breta sé að ræða. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði viðræðurnar ekki hafa strandað á veiðum. Þær hefðu strandað á mun fleiri atriðum en það.
Bretland Brexit Evrópusambandið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira