Ámælisverð viðbrögð eftir að þroskaskertur maður braut á barni Kristinn Haukur Guðnason skrifar 1. júní 2023 14:33 Um 250 börn dvelja í sumarbúðunum í Reykjadal á sumrin. Reykjadalur Samkvæmt nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) voru fyrstu viðbrögð starfsmanna í Reykjadal ámælisverð þegar þroskaskertur starfsmaður er sakaður um að hafa brotið á níu ára stúlku. Viðeigandi verkferla hafi skort með öllu og fyrstu viðbrögð talin ómarkviss.
GEV gerir kröfur um margvíslegar umbætur á starfsemi sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal til að koma í veg fyrir sambærileg atvik. Einnig til að tryggja gæði þjónustunnar sem þar er veitt. „Má þar t.a.m. nefna skýrari verklagsreglur um hvernig eftirliti og viðveru starfsmanna skuli vera háttað svo notandi þjónustu sé ekki skilinn eftir án eftirlits og sömuleiðis skýrari verklagsreglur um fyrstu viðbrögð starfsmanna þegar upp kemur grunur um kynferðislegt ofbeldi,“ segir í tilkynningu GEV. Skilaboð um að hringja ekki í lögreglu Atvikið átti sér stað síðasta sumar, á heimfarardegi stúlkunnar í sumarbúðunum. Maðurinn, sem er með mikla fötlun og þroskaskerðingu, var að starfa í gegnum sérúrræði við að sinna dýrum og útiverkum. Í umfjöllun Heimildarinnar um málið kemur fram að maðurinn hafi snert einkastaði stúlkunnar í lokuðu herbergi. Þegar komið var að honum hljóp hann í burtu og stúlkan sagði frá því sem hafði gerst. Yfirmenn Reykjadals leituðu til framkvæmdastjóra Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og spurðu hvort hringja skyldi í lögreglu. Samkvæmt heimildum Vísis sagði framkvæmdastjórinn þeim að hringja ekki í lögreglu. Starfsmannafjöldi verði nægur „Í ljósi þess hve alvarlegur misbrestur varð á fyrstu viðbrögðum starfsmanna og stjórnenda í Reykjadal og SLF þegar málið kom upp, ákvað GEV að hefja frumkvæðiseftirlit samhliða rannsókn sinni,“ segir í tilkynningunni. Markmiðið sé að tryggja að sú úrbótavinna, sem þegar sé hafin í Reykjadal fyrir sumarið, skili sér í betri þjónustu. Þetta sé forgangsverkefni. Mönnunin er eitt sem hefur verið til skoðunar, en fram kemur í skýrslunni að mikið álag hafi verið á starfseminni. Þurfi starfsmannafjöldi að taka nægilega mið af umönnunarþyngd og álagspunktum starfseminnar. Enn fremur segir: „Þá hefur stofnunin fengið upplýsingar um innleiðingu verkferla um fyrstu viðbrögð starfsmanna þegar upp kemur grunur um kynferðislegt ofbeldi gagnvart barni sem dvelur í Reykjadal sem og fræðslu og þjálfun í beitingu verkferlanna.“ Þá hefur GEV haft samband við rekstraraðila annarra sumarbúða fyrir börn á Íslandi til að kanna stöðu leyfa og gæði þjónustunnar. Tilgangurinn sé að fara yfir viðbragðáætlanir og skoða siðareglur ef upp kemur grunur um einelti eða ofbeldi af hvaða tagi sem er. Gerð verður gæðaúttekt á mönnun, þjálfun og fræðslu til starfsmanna. Skýrsluna má finna hér að neðan. Tengd skjöl Skýrsla_um_ReykjadalPDF722KBSækja skjal
Kynferðisofbeldi Mosfellsbær Ofbeldi gegn börnum Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Sjá meira