Dæmdur fyrir að hafa „laumast til kynmaka“ Sylvía Hall skrifar 15. apríl 2021 22:56 Dómstóll í Árósum sýknaði manninn af ákæru fyrir nauðgun. Getty Ungur karlmaður í Árósum í Danmörku var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun en dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa „laumast til kynmaka“ með jafnöldru sinni í sumarhúsi í Odder í janúar á þessu ári. Var talið að maðurinn hafði ekki haft ásetning til nauðgunar þegar brotið var framið.
Frá þessu er greint á vef TV2 þar sem vísað er í fréttatilkynningu lögreglunnar á Austur-Jótlandi. Maðurinn íhugar nú hvort hann eigi að áfrýja dómnum. Maðurinn hafði verið í sumarbústaðarferð með þremur vinum sínum og tveimur konum á sama aldri þegar hann braut gegn konunni, en hún hafði eytt kvöldinu með vini hans á meðan hann var með vinkonu hennar. Síðar um kvöldið ræddu mennirnir um að „skipta um félaga“, sem konan neitaði að gera. Þegar konurnar fóru út fyrir skiptu mennirnir um herbergi án þess að segja þeim frá því. Þegar konan kom til baka stunduðu þau kynlíf, en hún hélt hún væri enn með þeim manni sem hafði áður verið í herberginu. Þegar hún áttaði sig á aðstæðum hraðaði hún sér úr herberginu og hringdi í lögreglu. Ákæruvaldið byggði málið á nýjum „samþykkislögum“ þar sem sú krafa er gerð að báðir aðilar séu samþykkir kynmökum. Ef svo er ekki telst það vera nauðgun í skilningi laga, en breytingarnar tóku gildi 1. janúar síðastliðinn. „Brotaþoli hafði áður neitað að stunda kynlíf með manninum, en þrátt fyrir það skipti hann viljandi um herbergi við vin sinn án þess að láta vita af því. Hann gerði hvorki grein fyrir sér né gekk úr skugga um að hún væri samþykk kynmökunum,“ sagði saksóknarinn Jesper Rubow.
Danmörk Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Sjá meira