Zúistabræðrum hafnað um gögn sem leiddu til rannsóknar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. október 2021 15:54 Bræðurnir Ágúst Arnar (t.v.) og Einar (t.h.) Ágústssynir. Einar hlaut 3 ára og 9 mánaða fangelsisdóm vegna fjársvika árið 2017. Vísir Landsréttur hefur hafnað kröfum forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að fá aðgang að erindi frá Skrifstofu fjármálagerninga lörgeglu (SFL) og tilkynningu sem erindið byggði á. Forsvarsmennirnir sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti.
Í ákæru héraðssaksóknara eru bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir sakaðir um að hafa valdið íslenska ríkinu verulegri fjártjónshættu og fjártóni í reynd með því að styrkja og hagnýta sér ranga hugmynd embættismanna að trúfélagið Zuism uppfyllti skilyrði fyrir skráningu trúfélags. Á þeim forsendum hafi félagið fengið rúmlega 84,7 milljónir króna í sóknargjöld frá ríkinu. Verjendur bræðranna kröfðust þess í Héraðsdómi Reykjavíkur að málinu yrði vísað frá en þeirri kröfu var hafnað í apríl síðastliðnum. Nú kröfðust þeir að fá fyrrnefnt erindi frá SFL. Um er að ræða erindi til Embættis héraðssaksóknara sem leiddi til rannsóknar saksóknara á umsvifum bræðranna Ágústs Arnar og Einars. Verjendurnir ýjuðu að því að rannsókn á málinu hefði mögulega hafist áður en sú tilkynning barst héraðssaksóknara. Öll atriði þyrftu að vera uppi á borðum og mikilvægt að geta fullvissað sig um að rétt hafi verið að málum staðið. Þá bentu verjendurnir á að SFL væri ekki tilkynningaskyldur aðili heldu hafi einhver sem beri tilkynningaskyldu á grundvelli laganna sett tilkynninguna fram og þá væntanlega einungis tilkynnt um óeðlilega fjármunafærslu. Liggja þurfi fyrir hvað varð til þess að tilkynningin var send og hvers vegna færsla hjá skráðu trúfélagi hafi vakið grunsemdir. Einnig kunni að vera í tilkynningunni upplýsingar um meint frumbrot sem SFL hafi fengið upplýsingar um. Þá bentu verjendur á að skrifstofa SFL væri á sama gangi og héraðssaksóknari. Réttmæt ástæða væri til að ætla að málatilbúnaður hæfist á skrifstofu héraðssaksóknara og allt annað væri einhvers konar fyrirsláttur til að afla sér heimildar til að hefja rannsókn málsins. Það væri einnig ástæða þess að ákærðu vildu fá skjalið inn í málið og teldu að það kynni að varpa ljósi á hæfi ákæruvaldsins til að fara með málið. Landsréttur hafnaði beiðni verjendanna og sagði meðal annars að hvorki í gögnum málsins né undirliggjandi lagaákvæðum liggi nokkuð fyrir um að sóknaraðili hafi fengið eða átt að fá sent afrit af þeirri tilkynningu sem erindi SFL til héraðssaksóknara byggði á. Þá hefðu verjendur bræðranna ekki bent á ákveðin atriði sem þeir telji vera í erindi SFL til sóknaraðila eða útskýrt hvernig það geti haft áhrif á úrlausn málsins. Ekkert lægi fyrir um að erindið hafi að geyma sönnun um atvik máls sem héraðssaksóknara sé skylt að leggja fram. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Zuism Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent Fleiri fréttir Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Sjá meira