Skilur við KR í góðu: „Þetta eru bara orð á blaði“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2022 13:45 Sigurvin Ólafsson kom KV upp um tvær deildir. Hann stýrir liðinu í síðasta sinn í kvöld. HILMAR ÞÓR NORÐFJÖRÐ Sigurvin Ólafsson skilur við KR í góðu og hlakkar til að takast á við nýtt verkefni hjá FH. Hann segist þó eiga eftir að sakna þess að þjálfa lið KV.
Í fyrradag var greint frá því að Sigurvin myndi láta af störfum sem aðalþjálfari KV í Lengjudeild karla og sem aðstoðarþjálfari KR í Bestu deild karla til að taka við starfi aðstoðarmanns Eiðs Smára Guðjohnsen hjá FH. Hann var í fyrsta sinn á hliðarlínunni hjá FH þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við ÍA á Akranesi í gær. „Ég fékk veður af því að FH hefði áhuga á þessu. Ég hef alveg fengið fyrirspurnir í gegnum tíðina, skoðað það lauslega og yfirleitt hefur ekkert komið út úr því. En núna hugsaði ég málið aðeins betur, þetta virkaði mjög spennandi þannig ég fór með þetta aðeins lengra og þetta endaði svona,“ sagði Sigurvin í samtali við Vísi í dag. Hann segist skilja við KR í mesta bróðerni. „Það var allt í góðu. Aðal söknuðurinn, hvað tímann varðar, er að fara frá KV þar sem ég var búinn að vera í 4-5 ár. Það er helst leikmönnum KV að þakka að maður er á kortinu. Ég er mjög þakklátur þeim.“ Mikill aðdáandi Rúnars Sigurvin var aðstoðarmaður Rúnars Kristinssonar hjá KR og ber honum afar vel söguna. „Ég var aðdáandi Rúnars áður en ég byrjaði að vinna með honum og fer frá KR sem aðdáandi Rúnars Kristinssonar. Það hefur ekkert breyst. Ég er þakklátur honum fyrir að hafa tekið mig inn í teymið,“ sagði Sigurvin. Athygli vakti að þegar KR tilkynnti um brotthvarf Sigurvins var hann sagður hafa verið ráðgjafi innan þjálfarateymis liðsins. Frétt á heimasíðu KR um starfslok Sigurvins. Sigurvin kippir sér lítið upp við þetta. „Þetta eru bara orð á blaði, einhver stöðluð tilkynning og ég velti mér ekkert upp úr því. Ég er bara kominn í FH og hættur í KR. Það er fréttin. Hvernig það var orðað breytir mig engu.“ Hann segir þó rétt að breytingar hafi orðið á starfi hans en fjölgað hefur í þjálfarateymi KR frá því á síðasta tímabili. „Þetta er bara mekanismi sem hreyfist, í KR og annars staðar. Menn breyta um áherslur fyrir tímabil, á miðju tímabili og eftir tímabil. Það bættist í hópinn frá síðasta tímabili þegar ég var einn með Rúnari og Stjána [Kristjáni Finnbogasyni markvarðaþjálfara]. Áherslubreytingar urðu og það er eðlilegt,“ sagði Sigurvin. Erfitt að sleppa hendinni af þeim Hann hefur stýrt KV með góðum árangri undanfarin ár og farið með liðið upp um tvær deildir. Sigurvin verður í síðasta sinn við stjórnvölinn hjá KV í kvöld, þegar liðið tekur á móti Þrótti V. í afar mikilvægum nýliðaslag í Lengjudeildinni. Hann ætlar sér að kveðja KV með sigri. „Það væri draumur. Þetta verður skemmtileg stund og eftir leik kemur í ljós hvernig manni líður. Það verður erfitt að sleppa hendinni af þeim eftir að hafa haldið í höndina á þeim í nokkur ár. Það er leiðinlegt að þurfa að fara frá þeim við frekar erfiðar aðstæður, í fallbaráttu í Lengjudeildinni,“ sagði Sigurvin sem er þó bjartsýnn fyrir hönd sinna manna. „Ég hef fulla trú á því að KV haldi sér uppi. Hæfileikarnir og ástríðin eru til staðar og leikirnir sem við höfum spilað til þessa hafa verið jafnir og spennandi. Um leið og þetta fellur KV-megin hef ég engar áhyggjur af þessu.“
Besta deild karla KR FH Lengjudeild karla KV Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Fleiri fréttir Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ Sjá meira