Bóluefnið frá AstraZeneca mögulega gefið karlmönnum yngri en 65 ára Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. apríl 2021 11:38 AP/Matthias Schrader Á upplýsingafundi dagsins var nokkuð rætt um bólusetningar og aukaverkanir af völdum bóluefna en Danir hyggjast hætta notkun bóluefnisins frá AstraZeneca og að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis er sama til skoðunar í Noregi.
Þórólfur sagði þó ekki standa til að hætta notkun efnisins hérlendis; það yrði notað hjá 65 ára og eldri og mögulega yrðu þau mörk lækkuð niður í 60 ár. Þá sagði hann einnig til skoðunar að gefa yngri karlmönnum efnið en alvarlegra aukaverkana hefur einkum orðið vart hjá konum yngri en 55 ára. Um er að ræða sjaldgæfa blóðtappa, blóðsega- og blæðingavandamál. Notkun bóluefnisins frá Janssen (Johnson & Johnson) hefur verið hætt í bili í Bandaríkjunum af sömu orsökum en þar hafa komið upp sex alvarleg tilvik. Sjö milljónir hafa hins vegar verið bólusettar með bóluefninu. Þórólfur sagðist fylgjast með þróun mála vestanhafs og þá væri Lyfjastofnun Evrópu með málið til skoðunar. Sóttvarnalæknir sagði vert að hafa í huga að um 20 til 30 prósent Covid-19 sjúklinga gætu átt á hættu að þjást af einhvers konar blóðsegavandamálum og 0,1 prósent þjóðarinnar fengi blóðsega árlega. Þá kæmu þau upp hjá 0,3 til 0,5 prósent kvenna sem tekur pilluna. Þórólfur sagði vert að hafa þetta í huga þegar rætt væri um aukaverkanir vegna bóluefnanna. Hefur engin áhrif á bólusetningaráætlun Íslendinga Spurður um ákvörðun Dana sagðist Þórólfur telja hana tilkomna vegna þess að fleiri tilvik aukaverkana hefðu komið upp þar en annars staðar. Ekki væri vitað hvers vegna. Varðandi þá ákvörðun að fresta notkun bóluefnanna frá AstraZeneca og Janssen þrátt fyrir að aukaverkanirnar virtust vera afar sjaldgæfar, sagði Þórólfur að verið væri að bíða nokkra daga eftir upplýsingum. Allt bóluefni frá AstraZeneca sem hingað kæmi væri notað og ákvörðunin hefði engin áhrif á bólusetningaráætlun Íslendinga. Bóluefnið væri nýtt meðal þess hóps sem væri ekki talinn myndu fá umræddar aukaverkanir. Alma Möller landlæknir ítrekaði að hinir sjaldgæfu blóðtappar sem hefðu komið fram í kjölfar bólusetninga, og fylgifiskar þeirra, hefðu ekki sést hjá konum á getnaðarvarnapillunni. Það er að segja blóðtappa í bláæðum í höfði og/eða kvið.
Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Innlent Fleiri fréttir Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Sjá meira