Nýta mögulega hraðpróf til að fleiri geti notið dramatíkurinnar í Víkinni Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2021 15:30 Víkingar hafa verið dyggilega studdir í síðustu leikjum á leið sinni á topp Pepsi Max-deildarinnar. Ein umferð er eftir. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Víkingar vinna nú að því að sem flestir eigi þess kost að vera viðstaddir þegar þeir freista þess að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í fótbolta í þrjátíu ár, á laugardaginn. Hugsanlegt er að leikur Víkings og Leiknis verði fyrsti „hraðprófaviðburðurinn“ á Íslandi.
Víkingur er á toppi Pepsi Max-deildar karla í fótbolta fyrir lokaumferðina á laugardaginn og nægir því að vinna Leikni til að verða Íslandsmeistari. Víkingur greindi frá því á Twitter í dag að uppselt væri á leikinn en að unnið væri að því að fjölga miðum. Eins og staðan er í dag eru allir miðar uppseldir á leik Víkings og Leiknis sem fram fer næsta laugardag. Fundur er hjá stjórn Knattspyrnudeildar í kvöld þar sem skoðað verður hvernig hægt verður að bæta við miðum. Tilkynning verður send út í hádeginu á morgun þriðjudag.— Víkingur (@vikingurfc) September 20, 2021 Sem stendur eru 1.000 manns, 16 ára og eldri, með miða á leikinn því Víkingar geta skipt áhorfendasvæði sínu upp í tvö 500 manna sóttvarnahólf. Börn fædd 2006 og síðar eru ekki talin með í reglum um samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins. Að hámarki 500 manns megi koma saman í rými á knattspyrnuleikjum utanhúss án annarra skilyrða. Mögulega 1.500 manns auk barna Með notkun hraðprófa geta hins vegar 1.500 manns komið saman í einu rými. Það er möguleiki sem Víkingar eru nú að skoða: „Þá gæti þetta orðið eitt hólf fyrir 1.500 manns, auk krakka. Við yrðum þá með bretti og slíkt til að búa til stæði fyrir 500 manns. Ég held að við yrðum þá fyrsti viðburðurinn til að nýta þessi hraðpróf,“ segir Haraldur Haraldsson, formaður knattspyrnudeildar Víkings. Verði þetta raunin munu gestir á Víkingsvelli þurfa að sýna forsjálni og fara í hraðpróf seint á fimmtudaginn, á föstudag eða snemma laugardags (innan við 48 klukkustundum fyrir leik) og sýna svo neikvæða niðurstöðu við komuna á Víkingsvöll á laugardag. Ef allt gengur að óskum hjá Víkingum er því mögulegt að hátt í 2.000 manns, að börnum meðtöldum, sjái liðið landa langþráðum Íslandsmeistaratitli.
Samkomubann á Íslandi Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Íslenski boltinn Lést í fyrsta bardaga sínum Sport Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Fótbolti Lygileg toppbarátta í Danmörku Fótbolti Fernandes íhugar að stökkva frá borði Enski boltinn „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ Körfubolti Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Enski boltinn Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Handbolti „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Íslenski boltinn „Búinn að vera tilfinningarússibani“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Sjá meira
„Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Íslenski boltinn
„Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Íslenski boltinn