Sprengja sprengd í grunni nýs Landspítala

Frá Landspítala.
Frá Landspítala. mbl.is/Arnþór Birkisson

Sprengja fannst í grunni nýs Landspítala í dag. Var svæðið rýmt og kom sérsveit ríkislögreglustjóra í kjölfarið og gerði klárt fyrir að eyða sprengjunni með að sprengja hana upp.

Voru sérhannaðar sprengjumottur sóttar og settar yfir sprengjuna áður, en samkvæmt áhorfanda sem varð vitni að málinu var um öfluga sprengingu að ræða og fóru brot úr sprengjumottunni tugi metra í loft upp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert