Jokic með sópinn á lofti og LeBron mögulega hættur Sindri Sverrisson skrifar 23. maí 2023 07:29 Nikola Jokic stóð uppi sem sigurvegari en LeBron James gæti hafa spilað sinn síðasta leik. AP/Ashley Landis Nikola Jokic var að vanda stórkostlegur fyrir Denver Nuggets þegar liðið komst í fyrsta sinn í sögunni í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta, með því að sópa LA Lakers út 4-0. LeBron James og félagar í Lakers reyndu allt hvað þeir gátu að halda lífi í einvíginu og voru 73-58 yfir í hálfleik í nótt, en Denver svaraði því með mögnuðum þriðja leikhluta og vann að lokum 113-111. Jokic skoraði síðustu körfu leiksins en þá var enn tími fyrir tvær tilraunir James til að jafna metin, sem báðar klikkuðu. Jokic endaði með 30 stig, 14 fráköst og 13 stoðsendingar, og náði þar með þrennu í áttunda sinn í þessari úrslitakeppni. Þannig bætti hann 56 ára gamalt met Wilt Chamblerain yfir flestar þrennur í einni úrslitakeppni. Nikola Jokic that s my signature shot I m joking. But it s the easiest shot to shoot when you just have to shoot. Being off balanced, I ve been off balanced my entire life. pic.twitter.com/tIfa3x7l2c— Jake Shapiro (@Shapalicious) May 23, 2023 Serbinn lét að vanda einnig mikið til sín taka í vörninni en hafði orkuna sem þurfti til að komast framhjá Anthony Davis og skora sigurkörfuna þegar 51 sekúnda var eftir. „Ég held að þess vegna sé úrslitakeppnin svona skemmtileg og spennandi, því manni er alveg nákvæmlega sama hversu þreyttur maður er,“ sagði Jokic. „Manni er sama um mínútur, villur, skot, prósentur. Maður vill bara vinna leiki. Stundum spiluðum við ekki góða vörn en það er hægt að vinna leiki með alls konar hætti,“ sagði Jokic. Nikola Jokic (27.8 PTS, 14.5 REB, 11.8 AST) is the 4th player to average a triple-double in a Conference Finals:Jason Kidd (2001-02 vs. BOS): 17.5 PTS, 11.2 REB, 10.2 ASTMagic Johnson (1982-83 vs. SAS): 17.5 PTS, 10.5 REB, 14 AST*Wilt Chamberlain (1966-67 vs. BOS): 21.6 PPG, pic.twitter.com/hNnDCkaROw— NBA History (@NBAHistory) May 23, 2023 James átti rosalegan fyrri hálfleik og endaði leikinn með 40 stig, tíu fráköst og níu stoðsendingar en það dugði skammt. Hann hrósaði Jokic og Denver-liðinu í hástert eftir leik og sagði það líklega það besta sem hann hefði mætt þau fjögur ár sem hann hefði spilað með Lakers. James náði þeim áfanga í vetur að verða stigahæstur í sögu NBA-deildarinnar og í gærkvöld, rétt eftir að tímabilinu lauk, viðurkenndi hann að mögulega hefði hann spilað sinn síðasta leik á ferlinum. "Just for me personally going forward with the game of basketball, I got a lot to think about."LeBron James on his future(via @NBATV)pic.twitter.com/pu84XhAud3— Sports Illustrated (@SInow) May 23, 2023 „Hvað mig snertir, og framhaldið í körfuboltanum, þá þarf ég að hugsa um margt,“ sagði James á blaðamannafundi áður en hann kvaddi viðstadda, en hann útskýrði mál sitt aðeins betur í samtali við Dave McMenamin hjá ESPN. Þar sagðist hann vera að íhuga hvort hann vildi halda áfram á næstu leiktíð og að hann þyrfti nú að íhuga hvort hann vildi hætta. Denver byrjar sitt fyrsta einvígi um NBA-meistaratitilinn 1. júní og mögulega verða bæði lið þar úthvíld því í kvöld getur Miami Heat sópað Boston Celtics út því staðan í því einvígi er 3-0 Miami í vil. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. NBA Mest lesið „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Enski boltinn „Höfum vaxið með hverjum leik“ Fótbolti Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Fótbolti Dortmund í úrslit eftir sigur í París Fótbolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Fleiri fréttir Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Aþena upp í Subway-deildina „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Sjá meira
LeBron James og félagar í Lakers reyndu allt hvað þeir gátu að halda lífi í einvíginu og voru 73-58 yfir í hálfleik í nótt, en Denver svaraði því með mögnuðum þriðja leikhluta og vann að lokum 113-111. Jokic skoraði síðustu körfu leiksins en þá var enn tími fyrir tvær tilraunir James til að jafna metin, sem báðar klikkuðu. Jokic endaði með 30 stig, 14 fráköst og 13 stoðsendingar, og náði þar með þrennu í áttunda sinn í þessari úrslitakeppni. Þannig bætti hann 56 ára gamalt met Wilt Chamblerain yfir flestar þrennur í einni úrslitakeppni. Nikola Jokic that s my signature shot I m joking. But it s the easiest shot to shoot when you just have to shoot. Being off balanced, I ve been off balanced my entire life. pic.twitter.com/tIfa3x7l2c— Jake Shapiro (@Shapalicious) May 23, 2023 Serbinn lét að vanda einnig mikið til sín taka í vörninni en hafði orkuna sem þurfti til að komast framhjá Anthony Davis og skora sigurkörfuna þegar 51 sekúnda var eftir. „Ég held að þess vegna sé úrslitakeppnin svona skemmtileg og spennandi, því manni er alveg nákvæmlega sama hversu þreyttur maður er,“ sagði Jokic. „Manni er sama um mínútur, villur, skot, prósentur. Maður vill bara vinna leiki. Stundum spiluðum við ekki góða vörn en það er hægt að vinna leiki með alls konar hætti,“ sagði Jokic. Nikola Jokic (27.8 PTS, 14.5 REB, 11.8 AST) is the 4th player to average a triple-double in a Conference Finals:Jason Kidd (2001-02 vs. BOS): 17.5 PTS, 11.2 REB, 10.2 ASTMagic Johnson (1982-83 vs. SAS): 17.5 PTS, 10.5 REB, 14 AST*Wilt Chamberlain (1966-67 vs. BOS): 21.6 PPG, pic.twitter.com/hNnDCkaROw— NBA History (@NBAHistory) May 23, 2023 James átti rosalegan fyrri hálfleik og endaði leikinn með 40 stig, tíu fráköst og níu stoðsendingar en það dugði skammt. Hann hrósaði Jokic og Denver-liðinu í hástert eftir leik og sagði það líklega það besta sem hann hefði mætt þau fjögur ár sem hann hefði spilað með Lakers. James náði þeim áfanga í vetur að verða stigahæstur í sögu NBA-deildarinnar og í gærkvöld, rétt eftir að tímabilinu lauk, viðurkenndi hann að mögulega hefði hann spilað sinn síðasta leik á ferlinum. "Just for me personally going forward with the game of basketball, I got a lot to think about."LeBron James on his future(via @NBATV)pic.twitter.com/pu84XhAud3— Sports Illustrated (@SInow) May 23, 2023 „Hvað mig snertir, og framhaldið í körfuboltanum, þá þarf ég að hugsa um margt,“ sagði James á blaðamannafundi áður en hann kvaddi viðstadda, en hann útskýrði mál sitt aðeins betur í samtali við Dave McMenamin hjá ESPN. Þar sagðist hann vera að íhuga hvort hann vildi halda áfram á næstu leiktíð og að hann þyrfti nú að íhuga hvort hann vildi hætta. Denver byrjar sitt fyrsta einvígi um NBA-meistaratitilinn 1. júní og mögulega verða bæði lið þar úthvíld því í kvöld getur Miami Heat sópað Boston Celtics út því staðan í því einvígi er 3-0 Miami í vil. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
NBA Mest lesið „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Enski boltinn „Höfum vaxið með hverjum leik“ Fótbolti Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Fótbolti Dortmund í úrslit eftir sigur í París Fótbolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Fleiri fréttir Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Aþena upp í Subway-deildina „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Sjá meira