Var rænt á síðasta ári og hafði fé verið sett til höfuðs honum Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2021 10:45 Sænskir fjölmiðlar segja morðið á Einári sé talið tengjast bæði hnífstungu fyrr í mánuðinum, þar sem Einár var handtekinn, og mannrán á Einár á síðasta ári. EPA Sænski rapparinn Einár, sem skotinn var til bana í gærkvöldi, átti þrátt fyrir ungan aldur fortíð innan heims sænskra glæpagengja. Honum hafði áður verið rænt af hópi manna. Fé hafði verið sett til höfuðs honum nokkrum vikum áður en honum var ráðinn bani.
Sænskir fjölmiðlar greindu frá því í nótt að hinn nítján ára Einár, sem hét réttu nafni Nils Kurt Erik Einar Grönberg, hafi verið skotinn í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Á hann að hafa verið skotinn af 1,5 metra færi í höfuð og bringu. Tveir menn sáust hlaupa af vettvangi en enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins. Einár hafði áður við komið við sögu lögreglu, síðast fyrir hálfum mánuði í tengslum við hnífstungu á næturklúbbnum Nosh and Chow á Norrlandsgötu í Stokkhólmi. Þar hafði maður verið stunginn og þrír verið handteknir, þar ef tveir þekktir tónlistarmenn. Einár var einn þeirra. Þeim var öllum sleppt en höfðu stöðu sakbornings í málinu. Frá vettvangi morðsins í Hammarby sjöstad.EPA Rænt af öðrum rappara Sænskir fjölmiðlar rifja í dag upp tengsl Einárs við glæpasamtök. Þar kemur fram að honum hafi verið rænt af Haval, keppinauti Einárs í heimi sænskrar rapptónlistar, og félögum hans á vordögum 2020. Var Einár þá bundinn og myndir teknar af honum sem ætlað var að niðurlægja hann. Haval hlaut dóm fyrir ránið. Skömmu fyrir mannránið hafði þriðji rapparinn, Yasin, gert tilraun til að ræna Einár og hlaut hann einnig dóm fyrir. Aftonbladet segir að morðið á Einár sé talið tengjast bæði hnífstungunni fyrr í mánuðinum og mannráninu á Einár á síðasta ári. Kann að tengjast greiðslu sem aldrei barst Mannræningjarnir eiga að hafa á sínum tíma krafist þriggja milljóna sænskra króna, um 45 milljóna íslenskra króna greiðslu – greiðslu sem aldrei barst. Þetta kann að hafa verið ástæða morðsins og ástæða þess að rapparanum hafi borist hótanir síðustu vikurnar. Ennfremur segir að í júlí síðastliðinn hafi 26 manns með tengsl við glæpasamtök sem kennd eru við Vårby, hverfi suðvestur af Stokkhólmi, verið dæmdir fyrir ýmsa glæpi. Margir þeirra tengdust mannráninu á Einár og mannránstilrauninni á síðasta ári. Yasin var einn þeirra sem hlaut dóm, tíu mánaða fangelsi fyrir aðild að mannráni. Rapparinn Einár naut mikilla vinsælda í heimalandinu og var með milljónir spilana á Spotify.EPA Móðir Einárs kærði málið Einár sjálfur kærði ekki mannránið og var það þess í stað móðir hans, leikkonan Lena Nilsson, sem tilkynnti mannránið á syni sínum til lögreglu. Rapparinn Einár naut mikilla vinsælda í heimalandinu og var með milljónir spilana á Spotify. Hann vann til tveggja verðlauna á sænsku tónlistarhátíðinni Grammis á síðasta ári – annars vegar sem nýliði ársins og svo hip hop-tónlistarmaður ársins. Einar fæddist í Stokkhómi árið 2002 og sló í gegn sextán ára gamall með laginu Katten í trakten sem náði efsta sæti sænska vinsældalistans. Sama ár, 2019, gaf hann út sína fyrstu plötu, Första klass. Textar í lögum hans voru svokallað gangsterrap þar sem hann fjallaði um vopn, eiturlyf og glæpi.
Svíþjóð Tónlist Tengdar fréttir Einn vinsælasti rappari Svíþjóðar skotinn til bana Sænski rapparinn Einár var skotinn til bana í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar greina frá því að heimildarmenn segi Einár hafa ítrekað verið hótað. Morðið er talið tengjast átökum glæpagengja í sænsku höfuðborginni. 22. október 2021 07:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Staðfesta risasekt Arnarlax Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Lilja hjólar í Samfylkinguna: „Hver tekur Samfylkinguna alvarlega?“ Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Fjögur börn meðal smitaðra af kíghósta Innlent Fleiri fréttir Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Sjá meira
Einn vinsælasti rappari Svíþjóðar skotinn til bana Sænski rapparinn Einár var skotinn til bana í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar greina frá því að heimildarmenn segi Einár hafa ítrekað verið hótað. Morðið er talið tengjast átökum glæpagengja í sænsku höfuðborginni. 22. október 2021 07:07