Afkoma Arion tæpir fjórir milljarðar á þriðja ársfjórðungi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. október 2020 17:27 Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Arion banki
Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi var alls 3,9 milljarðar króna, sem er umtalsvert betri afkoma en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Afkoma fjórðungsins nam 3.966 milljónum króna og 6.708 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins. Arðsemi eiginfjár var 8,3 prósent á fjórðungnum og 4,7 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Afkoma af áframhaldandi starfsemi bankans var 4.961 milljónir króna og jókst um 31 prósent frá þriðja ársfjórðungi á síðasta ári. Heildareignir námu 1.236 milljörðum króna í lok september 2020, samanborið við 1.082 milljarða króna í árslok 2019. Lausafé bankans jókst þar sem ekki varð af fyrirhugaðri 10 milljarða króna arðgreiðslu og vegna útgáfu skuldabréfa undir viðbótar eiginfjárþætti 1 í febrúar og aukningar innlána. Lán til viðskiptavina hækkuðu lítillega frá áramótum, aðallega húsnæðislán. Innlán jukust um 22 prósent frá áramótum. Heildar eigið fé í lok september nam 192 milljörðum króna, samanborið við 190 milljarða króna í árslok 2019. Niðurfærslur útlána aukast, aðallega vegna neikvæðari forsendna vegna Covid-19 en endurskipulagning hjá Valitor dregur úr neikvæðum áhrifum félagsins á uppgjör bankans, að því er segir í tilkynningu. „Eftirspurn eftir íbúðalánum var óvenju mikil á ársfjórðungnum sem ásamt öðru leiddi til þess að lánasafn bankans hefur vaxið. Lausafjár- og eiginfjárstaða bankans heldur áfram að styrkjast og er sterkari en nokkru sinni. Bankinn er í raun í þeirri stöðu að vera með of mikið eigið fé sem nær ómögulegt er að ávaxta í takt við markmið bankans. Framundan er vetur sem mun einkennast af umtalsverðri óvissu. Við sjáum það t.a.m. á varúðarniðurfærslum í lánasafninu og niðurfærslu á eignum bankans til sölu á þriðja ársfjórðungi. Þetta er einfaldlega sá raunveruleiki sem við búum við þessi misserin. Við munum vinna með viðskiptavinum okkar og gera okkar besta til að styðja við þá í gegnum þetta tímabil,“ er haft eftir Benedikti Gíslasyni, bankastjóra Arion banka í tilkynningunni sem lesa má í heild sinni hér.
Íslenskir bankar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti innlent Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Viðskipti innlent Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Viðskipti innlent Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Viðskipti innlent Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Viðskipti innlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Sjá meira