Bætir 300 ferkílómetrum við Vatnajökulsþjóðgarð Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2021 13:35 Guðmundur Ingi Guðbrandsson er umhverfis- og auðlindaráðherra. Myndin er frá krossárgili innan þjóðgarðs. Stjórnaráðið/Anna Þorsteinsdóttir/Vísir/Vilhelm Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur undirritað breytingar á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð sem kveður á um þrjú hundruð ferkílómetra stækkun á norðursvæði þjóðgarðsins.
Frá þessu segir á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, en með viðbótinni verður Vatnajökulsþjóðgarður nú 14.967 ferkílómetrar. „Stækkunin er öll á þjóðlendu innan Þingeyjarsveitar, en svæðið sem bætist við þjóðgarðinn er 299 km2 af óbyggðum víðernum á Bárðdælaafrétt austari. Svæðið sem bætist við þjóðgarðinn nær frá sveitarfélagamörkum Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps og langleiðina að Skjálfandafljóti. Vestari mörk hins stækkaða svæðis ná að mögulegu framkvæmdasvæði virkjunarkosta sem eru til meðferðar í verndar- og orkunýtingaráætlun. Undirbúningur stækkunar hefur verið í nánu samstarfi við Þingeyjarsveit og í samráði við stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs,“ segir í tilkynningunni. Einnig segir að svæðið sé alþjóðlega mikilvægt fyrir heiðagæs en hátt í 10 prósent af íslenska heiðagæsastofninum verpi á svæðinu í grónum dölum, einkum nyrst á svæðinu. Mikil verðmæti, segir ráðherra Haft er eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra að það séu gríðarlega mikil verðmæti í óbyggðum víðernum á hálendi Íslands. „43% af ósnortnum víðernum Evrópu er að finna á Íslandi og því er ábyrgð okkar mikil að rýra þau ekki frekar. Með þessari stækkun njóta nú stærri hluti víðerna landsins verndar til framtíðar og þökk sé framsýni sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar að þá bætast nú um 300 km2 af óbyggðum víðernum við þjóðgarðinn. Á sama tíma eflum við landsbyggðina með fjölgun starfa vegna aukinna verkefna þjóðgarðsins á svæðinu,“ er haft eftir Guðmundi Inga.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Umhverfismál Vatnajökulsþjóðgarður Þjóðgarðar Tengdar fréttir Umhverfisráðherra segir þingmenn Sjálfstæðisflokks vinna gegn náttúruvernd Umhverfisráðherra hafnar alfarið ásökunum þingmanna Sjálfstæðisflokksins um siðleysi og lögbrot í tengslum við fjölda friðlýsinga á lokaspretti kjörtímabilsins. Hann segir þingmenninga vera að sýna sitt raunverulega andlit og vinna gegn náttúruvernd. 22. september 2021 12:13 Segir ráðherra fara um með „friðlýsingasprotann í skjóli nætur“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fara um landið með „friðlýsingasprotann í skjóli nætur“. Hann sé að friðlýsa landsvæði um víðan völl án samráðs og faglegs undirbúnings. 21. september 2021 20:37 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Innlent Fleiri fréttir Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Sjá meira
Umhverfisráðherra segir þingmenn Sjálfstæðisflokks vinna gegn náttúruvernd Umhverfisráðherra hafnar alfarið ásökunum þingmanna Sjálfstæðisflokksins um siðleysi og lögbrot í tengslum við fjölda friðlýsinga á lokaspretti kjörtímabilsins. Hann segir þingmenninga vera að sýna sitt raunverulega andlit og vinna gegn náttúruvernd. 22. september 2021 12:13
Segir ráðherra fara um með „friðlýsingasprotann í skjóli nætur“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fara um landið með „friðlýsingasprotann í skjóli nætur“. Hann sé að friðlýsa landsvæði um víðan völl án samráðs og faglegs undirbúnings. 21. september 2021 20:37