Væri ágætis byrjun að biðja fólkið afsökunar á þessu klúðri Snorri Másson skrifar 8. apríl 2021 16:07 Bjarni Már Magnússon lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík. Vísir/Baldur Hrafnkell Bjarni Már Magnússon, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að „grafa undan íslenskum dómstólum“ með viðbrögðum sínum við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að skyldudvöl á sóttkvíarhóteli væri ólögmæt ráðstöfun.
Hann telur eðlilegt að heilbrigðisyfirvöld biðji þá einstaklinga afsökunar sem voru frelsissviptir með ólögmætum hætti. „Það eru aðallega þessi ítrekuðu ummæli um að niðurstaða dómstólsins séu vonbrigði eða óheppileg eða geti sett sóttvarnir í landinu í uppnám. Það er ekki niðurstaða dómstóls sem setur sóttvarnir í uppnám, heldur eru það vinnubrögð heilbrigðisyfirvalda,“ segir Bjarni í samtali við Vísi. „Það er þekkt að skjóta á dómstóla þegar einhverjir hafa klúðrað málunum,“ segir prófessorinn. „Líkist þetta lýðræðislegum stjórnarháttum?“ spyr hann í tísti í dag. Hættuleg orðræða Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt að úrskurðurinn sé slæmur fyrir sóttvarnir í landinu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sagt hann vonbrigði. Bjarni segir svona orðræðu af hálfu stjórnvalda ekki tæka í lýðræðisríki. „Þetta er svo hættuleg orðræða, einkum þegar stemningin er orðin svona súr. Það er mikil vigt lögð í þessi ummæli en þarna er bara verið að gagnrýna dómstóla fyrir að standa vörð um réttindi borgara og grundvallarreglur í lýðræðisríki. Svo fylgir Læknafélagið í kjölfarið. Mér finnst þetta bara sorglegt,“ segir Bjarni. Hann leggur áherslu á að gagnrýni hans beinist ekki að sóttvarnaaðgerðum í sjálfu sér. „Þetta hefur ekkert með skoðanir mínar á sóttvörnum. Ég hef ekkert á móti þeim, ég er bara á móti fúski,“ segir Bjarni. Úr því að vandinn liggur að sögn Bjarna ekki hjá dómstólum heldur hjá stjórnvöldum, segir hann að einhverjir þurfi nú að biðjast afsökunar. „Sérstaklega það fólk sem hefur verið frelsissvipt. Það væri ágætisbyrjun að biðja það afsökunar á þessu klúðri og gera betur. Það er náttúrulega ekki lenska hérlendis að stjórnmálamenn segi af sér, þannig að það er ekki raunhæfur möguleiki.“ Gróf brot á réttindum fólks Bjarni segir að með upphaflegu reglugerðinni um skyldudvöl á sóttkvíarhóteli hafi ýmsar grundvallarreglur verið þverbrotnar. „Þetta er skrýtið mál og mér finnst svo sérstakt hve léttvægt þau virðast líta á þetta. Þau virðast ekki átta sig á hve gróf þessi brot á réttindum fólks eru,“ segir Bjarni. Hann segir mögulegt að útfæra skyldudvöl á sóttkvíarhótelum en þá þurfi að gera það eftir ákveðnum ferlum og ekki sama hvernig farið er að. Lagabreytingu þarf til. Loks gagnrýnir Bjarni að stjórnvöld hafi neitað að afhenda gögn sem hugsanlega geta varpað ljósi á umrædd réttindabrot. Gögnin sem ákvörðunin um sóttkvíarhótel grundvallast á hafa enn ekki verið birt, eins og þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt. Það er merkilegt að á einni viku hafa heilbrigðisyfirvöld brotið á grundvallarréttindum borgaranna, grafið undan íslenskum dómstólum, neitað að afhenda gögn sem hugsanlega geta varpað ljósi á brotin og ekki axlað nokkra ábyrgð. Líkist þetta lýðræðislegum stjórnarháttum?— Bjarni Már Magnússon (@BjarniMM) April 8, 2021
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Tengdar fréttir Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11 Brynjar segist aldrei muni taka þátt í að breyta sóttvarnarlögum við þessar aðstæður Talið er víst að margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni setja sig alfarið á móti því að breyta sóttvarnarlögum í þá átt að löglegt sé að skikka fólk í sóttvarnarhús, komi til þess. 6. apríl 2021 14:18 „Vandinn snýr að sundurlyndi ríkisstjórnarinnar í þessu“ Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, telur að það sé einna helst sundurlyndi ríkisstjórnarflokkanna um að kenna hvernig fór um reglugerð um skyldudvöl í sóttvarnarhúsi. 6. apríl 2021 15:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Makar mætast í Pallborðinu Innlent Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Innlent Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Innlent Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Innlent Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Erlent Mögulegt strok á laxi úr landeldi Innlent Fleiri fréttir Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Einn fluttur eftir þriggja bíla árekstur Óska eftir frekara gæsluvarðhaldi Skjálftahrina og skyndilegt brotthvarf þjálfara Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Makar mætast í Pallborðinu Mögulegt strok á laxi úr landeldi Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Opna Laugardalslaug á ný Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Sjá meira
Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11
Brynjar segist aldrei muni taka þátt í að breyta sóttvarnarlögum við þessar aðstæður Talið er víst að margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni setja sig alfarið á móti því að breyta sóttvarnarlögum í þá átt að löglegt sé að skikka fólk í sóttvarnarhús, komi til þess. 6. apríl 2021 14:18
„Vandinn snýr að sundurlyndi ríkisstjórnarinnar í þessu“ Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, telur að það sé einna helst sundurlyndi ríkisstjórnarflokkanna um að kenna hvernig fór um reglugerð um skyldudvöl í sóttvarnarhúsi. 6. apríl 2021 15:36