Markvarsla ársins kom á Íslandi (myndskeið)

Perla Ruth Albertsdóttir tók vítið en náði ekki að skora.
Perla Ruth Albertsdóttir tók vítið en náði ekki að skora. mbl.is/Óttar Geirsson

Besta handboltamarkvarsla ársins kom samkvæmt handknattleikssambandi Evrópu á Íslandi er Ísland mætti Færeyjum í undankeppni EM í síðasta mánuði.  

Rakul S. Wardum í marki Færeyja varði þá stórkostlega frá Perlu Ruth Albertsdóttur úr vítakasti. Perla gabbaði Rakul fyrst um sinn og var markvörðurinn sest áður en Perla skaut.

Þrátt fyrir það tókst þeirri færeysku að verja, eins og sjá má hér fyrir neðan. Bæði lið verða með á Evrópumótinu í lok árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert