Bikarmeistararnir fá HK í heimsókn

Valur og HK mætast í bikarnum.
Valur og HK mætast í bikarnum. mbl.is/Árni Sæberg

Valsmenn hefja vörn bikarmeistaratitilsins í karlaflokki í handknattleik með heimaleik gegn HK en dregið var til sextán liða úrslitanna í dag.

Toppliðin í 1. deildinni fá áhugaverða heimaleiki gegn úrvalsdeildarliðum því Hörður fær FH í heimsókn til Ísafjarðar og ÍR tekur á móti Selfyssingum í Austurbergi.

Þessi lið mætast í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikars karla.

ÍBV 2  Þór
ÍR  Selfoss
Vængir Júpíters  Víkingur
Hörður  FH
Valur  HK
Kórdrengir  ÍBV
Stjarnan  KA
Grótta  Haukar

Leikirnir fara fram um miðjan febrúar.

Afturelding, Fram og Fjölnir eru einu liðin sem eru fallin út úr bikarnum en þrír leikir voru í fyrstu umferð keppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert