Stóðu heiðursvörð við útför kafteins Tom Moore Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. febrúar 2021 20:06 Útför kafteins Tom Moore fór fram í dag. EPA-EFE/JOE GIDDENS Útför kafteins Tom Moore, sem safnaði milljörðum til styrktar breska heilbrigðiskerfinu síðasta vor, fór fram í dag. Breskir hermenn stóðu heiðursvörð og herflugvélar flugu yfir útförinni til heiðurs kafteininum.
Útförinni var sjónvarpað en vegna kórónuveirufaraldursins gátu aðeins átta nánir fjölskyldumeðlimir verið viðstaddir útförinni. Sex hermenn úr hersveit Jórvíkurskíris, sem Moore var hluti af í síðari heimstyrjöldinni, báru kistu hans til grafar. Þá stóðu fjórtán hermenn heiðursvörð og skutu úr byssum upp í loft honum til heiðurs. Herflugvélinni Douglas C-47, sem var notuð af Bretum í síðari heimstyrjöld, var flogið yfir útfararstaðinn. Hermenn úr hersveit Jórvíkurskíris stóðu heiðursvörð við útför kafteins Tom Moore.EPA-EFE/JOE GIDDENS Um leið og sóttvarnareglur leyfa ætlar fjölskylda Moors að jarðsetja ösku hans í Jórvíkurskíri þar sem hann mun hvíla ásamt foreldrum sínum, öfum og ömmum. Moore dó 2. febrúar síðastliðinn eftir að hafa smitast af kórónuveirunni, hundrað ára gamall. Moore öðlaðist heimsfrægð síðasta sumar þegar hann safnaði 32 milljónum punda, eða um 6 milljörðum íslenskra króna, til styrktar breska heilbrigðiskerfinu í ljósi kórónuveirufaraldursins. Upphaflega stefndi hann á að ganga hundrað hringi í garðinum sínum og safna þúsund pundum. Herþotu frá síðari heimstyrjöld var flogið yfir útfararstaðinn.EPA-EFE/JOE GIDDENS Moore var sleginn til riddara af Elísabetu Bretlandsdrottningu vegna framlags hans til bresks samfélags. Hann hafði verið útnefndur til riddaratignar af Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, í maí í fyrra.
Bretland England Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir „Þjóðarklapp“ til heiðurs kafteini Tom Moore Fjöldi fólks í Bretlandi tók þátt í svokölluðu „þjóðarklappi“ til heiðurs kafteins Tom Moore sem lést á dögunum úr Covid-19. Hann hafði safnað milljörðum króna fyrir heilbrigðiskerfið í Bretlandi meðan á kórónuveirufaraldrinum stóð. 3. febrúar 2021 18:11 Kafteinn Tom Moore er látinn Sir Tom Moore kafteinn er látinn, hundrað ára að aldri. Hann var lagður inn á sjúkrahús smitaður af kórónuveirunni um helgina. 2. febrúar 2021 16:30 Kafteinn Tom Moore lagður inn á sjúkrahús vegna veirunnar Kafteinn Tom Moore hefur verið lagður inn á sjúkrahús en hann hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Moore vakti heimsathygli eftir að hann safnaði meira en 32 milljónum punda, um sex milljörðum króna, fyrir heilsugæsluna í tilefni af hundrað ára afmæli sínu. 31. janúar 2021 17:58 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Fleiri fréttir Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Sjá meira
„Þjóðarklapp“ til heiðurs kafteini Tom Moore Fjöldi fólks í Bretlandi tók þátt í svokölluðu „þjóðarklappi“ til heiðurs kafteins Tom Moore sem lést á dögunum úr Covid-19. Hann hafði safnað milljörðum króna fyrir heilbrigðiskerfið í Bretlandi meðan á kórónuveirufaraldrinum stóð. 3. febrúar 2021 18:11
Kafteinn Tom Moore er látinn Sir Tom Moore kafteinn er látinn, hundrað ára að aldri. Hann var lagður inn á sjúkrahús smitaður af kórónuveirunni um helgina. 2. febrúar 2021 16:30
Kafteinn Tom Moore lagður inn á sjúkrahús vegna veirunnar Kafteinn Tom Moore hefur verið lagður inn á sjúkrahús en hann hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Moore vakti heimsathygli eftir að hann safnaði meira en 32 milljónum punda, um sex milljörðum króna, fyrir heilsugæsluna í tilefni af hundrað ára afmæli sínu. 31. janúar 2021 17:58