Læknar geti ekki vottað um dagsflensu starfsmanna frekar en aðrir Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. janúar 2023 17:08 Fjöldi fólks finnur sig knúinn til að sækja læknisvottorð þegar aðeins er um að ræða dagsflensu. Getty Læknar á heilsugæslustöðvum Höfuðborgarsvæðisins gáfu út tæplega 150 þúsund vottorð árið 2021. Læknar segja vinnumarkaðinn gera kröfu um afhendingu vottorðs um veikindi við of lítið tilefni og vottorðsútgáfur valda miklu óþörfu álagi.
Tæplega hundrað og fimmtíu þúsund læknisvottorð voru gefin út af heimilislæknum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins árið 2021. Tæplega 39 þúsund þeirra voru vegna fjarvista frá vinnu, tæplega 32 þúsund beiðnir um sjúkraþjálfun og liðlega 20 þúsund almenn vottorð. Útgáfa vottorða hefur aukist nokkuð á undanförnum árum en frá árinu 2018 til 2021 fjölgaði þeim um 35 þúsund. Læknar segja talsverðan hluta vottorðanna vera óþarfan, til dæmis læknisvottorð vegna flensupestar, og eiga sinn þátt í manneklu og löngum biðtímum hjá heilsugæslunum. „Það dylst engum að það er gríðarlega mikið álag og mjög mikið af vottorðum sem verið er að gefa út, sem er oft ekki mikill grundvöllur fyrir. Oft verið að tikka í box svo fólk eigi réttindi hjá vinnuveitanda,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, en hún situr jafnframt í starfshópi heilbrigðisráðherra um útgáfu vottorða. Starfshópurinn hefur skilað tillögum til ráðherra en Sigríður segir umræðuna þegar hafa borið árangur. „Þessi umræða hefur nú orðið til þess að Sjúkratryggingar eru byrjaðar á endurskoðun og lagfæringu á sínu laga- og reglugerðarumhverfi.“ Eitt af því sem verði að endurskoða sé krafa vinnuveitenda um læknisvottorð þegar starfsfólk er heima með flensu. „Samtal starfsmanna og vinnuveitenda ætti að vera öðruvísi heldur en að fólk þurfi að fá vottorð um að það hafi verið heima með pest einn dag, sem við getum auðvitað ekkert vottað um frekar en einhver annar.“
Heilbrigðismál Heilsugæsla Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Fleiri fréttir Einn í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Sjá meira