Miðvörðurinn Ronald Araujo meiddist í landsleikjaglugganum sem núna stendur yfir.
Hann varð fyrir meiðslum í læri og þarf hann að fara í aðgerð vegna þess, eftir því sem kemur fram hjá Mundo Deportivo.
Araujo varð fyrir meiðslunum í landsleik með Úrúgvæ gegn Íran á dögunum.
Það er núna óttast að Araujo, sem er 23 ára, verði frá vegna þessara meiðsla í um tvo og hálfan mánuð. Ef það er staðan, þá mun hann að öllum líkindum missa af HM í Katar.
Ef sú er raunin - að hann verði lengi frá - þá er það ekki bara áfall fyrir Úrúgvæ. Þetta er miðvörður sem hefur verið að leika vel fyrir Barcelona í La Liga og er hann á uppleið á sínum ferli.
Athugasemdir