Skyndiaðgerð til að tryggja gögn frá tifandi eldstöð Kristján Már Unnarsson skrifar 16. október 2020 23:23 Snjóbíll Hjálparsveitar skáta í Reykjavík var fenginn til að flytja rafstöðina frá Skálafellsjökli og upp á Grímsfjall. Hér er snjóbíllinn með búnað Landvirkjunar og Jarðvísindastofnunar. Mynd/Almannavarnir.
Óvæntur liðsauki sem Almannavarnir fengu á Vatnajökli í vikunni, frá ólíkum félögum, stofnunum og einstaklingum, tryggði að samband rofnaði ekki við tækjabúnað sem vaktar eldstöðina Grímsvötn. Stefndi í að bilun rafstöðvar á Grímsfjalli myndi valda sambandsleysi við rannsóknartæki Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands, sem talið var óásættanlegt vegna vísbendinga um að eldgos gæti verið í uppsiglingu. Vísindatækin eru í skálum Jöklarannsóknafélags Íslands á Grímsfjalli. Auk þess er Neyðarlínan þar með TETRA-sendi og örbylgjusamband sem nær niður á Skeiðarársand. Allar gagnasendingar fara um þennan sendi en hann fær orku úr rafgeymastæðu sem hlaðin er með fjarstýrðri rafstöð. Grímsvötn séð úr vefmyndavél ofan af Grímsfjalli í vikunni.Mynd/Almannavarnir. Þegar rafstöðin bilaði í vikunni stóðu menn frammi fyrir því að einungis 24 tímar væru eftir af hleðslu rafgeymanna og eftir það myndu gögn hætta að berast frá Grímsfjalli. Var gripið til þess ráðs að óska aðstoðar Landhelgisgæslunnar til þess að fljúga með nýja rafstöð upp á Vatnajökul. Sú leið reyndist ófær þar sem rafstöðin var talin of þung fyrir þyrlu. Rafstöðinni var lyft upp í snjóbíllinn um nóttina með traktor af sveitabæ úr Suðursveit.Mynd/Almannavarnir. „Það var til happs að hópur frá Landsvirkjun, Jarðvísindastofnun og Neyðarlínunni var við mælingar á Vatnajökli og lögðust allir á eitt við að koma nýrri rafstöð upp á Grímsfjall,“ segir í pistli á fésbókarsíðu Almannavarna. Nýja rafstöðin komin á sinn stað í vélargeymslunni á Grímsfjalli.Mynd/Almannavarnir. Til að allt gengi sem skjótast fyrir sig, áður en rafgeymarnir tæmdust, var ákveðið að ný rafstöð yrði flutt landleiðina með bíl austur að Skálafellsjökli. Á sama tíma færi snjóbíll Hjálparsveitar skáta, sem var að þjónusta mælingaleiðangurinn, akandi frá Grímsfjalli niður að jökulsporði til móts við rafstöðina. „Vel gekk að koma rafstöðinni fyrir í snjóbílnum með aðstoð Bjarna Skarphéðins á Vagnsstöðum, sem kom með traktor til að lyfta rafstöðinni, og var hún komin upp á Grímsfjall kl. 04 um nóttina, eða um 18 tímum eftir að óskað var eftir nýrri rafstöð. Rúmlega 2 tíma tók að ganga frá henni og tengja og var allt farið að virka áður en hleðsla geymanna tæmdist,“ segir í lýsingu Almannavarna. „Þetta er stutt saga um frábæra samvinnu fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem leggja sitt af mörkum til almannavarna þegar mest á reynir, því við erum öll almannavarnir,“ segir þar.
Grímsvötn Eldgos og jarðhræringar Almannavarnir Landsvirkjun Hornafjörður Skaftárhreppur Tengdar fréttir Grímsvatnagos það síðasta sem alþjóðaflug þarf núna Gulur litakóði, sem settur var á eldgosaviðvörun fyrir Grímsvötn í síðustu viku, veldur áhyggjum í flugheiminum. Einn helsti flugfréttamiðill heims segir Grímvatnagos það síðasta sem alþjóðaflugið þurfi núna ofan í heimsfaraldur kórónuveiru. 10. október 2020 10:06 Merki um aukið útstreymi kvikugass úr Grímsvötnum Meiri jarðskjálftavirkni, aukning jarðhita og útstreymi kvikugass benda til að Grímsvötn búi sig undir eldgos. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir vatnsborð orðið hátt í Grímsvötnum og ef það hlaupi úr þeim á næstu mánuðum verði menn að vera viðbúnir gosi í kjölfarið. 10. júní 2020 22:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Sjá meira
Grímsvatnagos það síðasta sem alþjóðaflug þarf núna Gulur litakóði, sem settur var á eldgosaviðvörun fyrir Grímsvötn í síðustu viku, veldur áhyggjum í flugheiminum. Einn helsti flugfréttamiðill heims segir Grímvatnagos það síðasta sem alþjóðaflugið þurfi núna ofan í heimsfaraldur kórónuveiru. 10. október 2020 10:06
Merki um aukið útstreymi kvikugass úr Grímsvötnum Meiri jarðskjálftavirkni, aukning jarðhita og útstreymi kvikugass benda til að Grímsvötn búi sig undir eldgos. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir vatnsborð orðið hátt í Grímsvötnum og ef það hlaupi úr þeim á næstu mánuðum verði menn að vera viðbúnir gosi í kjölfarið. 10. júní 2020 22:07