Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. október 2021 23:31 Donald Trump er ekki lengur forseti Bandaríkjanna. Scott Olson/Getty Images Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur stefnt rannsóknarnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar áhlaupið á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans.
Sérstök nefnd fulltrúadeildarinnar rannsakar nú árás stuðningsmanna Trump á bandaríska þinghúsið í janúar og aðdraganda hennar. Meðal þess sem nefndin vill kanna eru skjöl frá forsetatíð Trumps. Trump hefur farið fram á að skjölin njóti sérstakrar forsetaverndar en ríkisstjórn Joe Biden, arftaka Trump á forsetastóli, hefur neitað að verða við þeirri bón. Í frétt CNN segir að Trump leggist gegn því að nefndin fái að skoða um fjörutíu skjöl og hefur hann stefnt nefndinni til þess að koma í veg fyrir að skjölin verði gerð aðgengileg. Búist er við að Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna, sem geymir skjölin, afhendi þau í byrjun næsta mánaðar. Segir Trump að gagnabeiðni nefndarinnar sé svo víð að engin lögmætur grundvöllur sé fyrir henni. Þá sé að hans mati ljóst að lög um forsetaskjöl standist ekki stjórnarskrá séu þau túlkuð svo vítt að sitjandi forseti geti lyft forsetavernd af skjölunum örfáum mánuðum eftir að forveri hans lætir af hendi, en Trump vill meina að Biden sé að koma á sig pólitísku höggi með því að koma í veg fyrir að forsetavernd gildi um skjölin. Trump var kærður fyrir embættisbrot vegna árásinnar á þinghúsið en hann var talinn hafa eggjað stuðningsmenn sína til hennar með þrálátum lygum um að stórfelld svik hefðu kostað hann endurkjör. Öldungadeild þingsins sýknaði hann af kærunni.
Árás á bandaríska þinghúsið Joe Biden Donald Trump Tengdar fréttir Vildi beita ráðuneytinu til að halda völdum eftir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, vildi skipta um starfandi dómsmálaráðherra á síðustu vikum forsetatíðar sinnar og skipa vinveittan mann til að beita ráðuneytinu til snúa niðurstöðum forsetakosninganna sem hann tapaði. Æðstu starfsmenn ráðuneytisins hótuðu því að hætta í massavís og það gerði æðsti lögmaður Hvíta hússins einnig. 7. október 2021 22:30 Trump krefst þess að komast aftur á Twitter Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur höfðað mál gegn Twitter í Texas. Hann krefst þess að verða hleypt aftur inn á samfélagsmiðilinn eftir að hafa verið bannaður þar í kjölfar árásarinnar á þinghúsið í Bandaríkjunum þann 6. janúar. 2. október 2021 16:30 Stefna nánum bandamönnum Trump vegna árásarinnar á þinghúsið Þingnefnd sem rannsakar árás stuðningsmanna Donald Trump á bandaríska þinghúsið í janúar hefur stefnt fjórum ráðgjöfum og embættismönnum hans til að bera vitni og afhenda gögn. Á meðal þeirra sem er stefnt er Mark Meadows, fyrrverandi skrifstofustjóri Hvíta hússins. 24. september 2021 11:50 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Sjá meira
Vildi beita ráðuneytinu til að halda völdum eftir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, vildi skipta um starfandi dómsmálaráðherra á síðustu vikum forsetatíðar sinnar og skipa vinveittan mann til að beita ráðuneytinu til snúa niðurstöðum forsetakosninganna sem hann tapaði. Æðstu starfsmenn ráðuneytisins hótuðu því að hætta í massavís og það gerði æðsti lögmaður Hvíta hússins einnig. 7. október 2021 22:30
Trump krefst þess að komast aftur á Twitter Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur höfðað mál gegn Twitter í Texas. Hann krefst þess að verða hleypt aftur inn á samfélagsmiðilinn eftir að hafa verið bannaður þar í kjölfar árásarinnar á þinghúsið í Bandaríkjunum þann 6. janúar. 2. október 2021 16:30
Stefna nánum bandamönnum Trump vegna árásarinnar á þinghúsið Þingnefnd sem rannsakar árás stuðningsmanna Donald Trump á bandaríska þinghúsið í janúar hefur stefnt fjórum ráðgjöfum og embættismönnum hans til að bera vitni og afhenda gögn. Á meðal þeirra sem er stefnt er Mark Meadows, fyrrverandi skrifstofustjóri Hvíta hússins. 24. september 2021 11:50
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins