Sveitarstjórn Múlaþings ekki á móti þjóðsöngnum Kristinn Haukur Guðnason skrifar 23. maí 2023 12:09 Berglind Harpa segir þjóðsönginn fallegan og hátíðlegan en tillagan hafi ekki átt neitt erindi inn í umræðu um styrkbeiðni. Sveitarstjórn Múlaþings er ekki á móti því að þjóðsöngurinn sé sunginn á 17. júní að sögn Berglindar Hörpu Svavarsdóttur, formanns byggðarráðs. Tillaga um að söngurinn yrði fluttur hafi hins vegar ekki átt neitt erindi inn í umræðu um fjárveitingar.
Bókun byggðarráðs Múlaþings í síðustu viku hefur vakið talsverða athygli. En þar hafnaði meirihlutinn tillögu Þrastar Jónssonar, fulltrúa Miðflokksins, um að þjóðsöngurinn, lofsöngurinn Ó, guð vors lands, yrði sunginn að minnsta kosti einu sinni á hátíðarhöldunum á Egilsstöðum. Helst við inngöngu fjallkonunnar. Tillagan var breytingartillaga við afgreiðslu styrkbeiðni íþróttafélagsins Hattar, sem sér um dagskránna. Þrír fulltrúar kusu gegn tillögunni en tveir sátu hjá. Berglind Harpa segir að þessi tillaga hafi ekki átt neitt erindi inn í þessa umræðu, þar sem verið var að leiðrétta fjárveitingar til hátíðarhaldanna vegna verðhækkana. Þröstur segir að hugsanlega þyki þjóðsöngurinn púkó vegna guðstengingar í textanum.Miðflokkurinn „Við erum ekki með upplýsingar um hvernig dagskráin fer fram. Þegar engin gögn liggja fyrir og engin umræða hefur farið fram erum við ekkert að bóka sérstaklega um það,“ segir Berglind. „Það er ekkert mál að koma með vinsamleg tilmæli án þess að það þurfi að liggja bókun fyrir tengd við aukafjárveitingu.“ Þjóðsöngurinn púkó Í viðtali við Morgunblaðið segir Þröstur að hann hafi sett tillöguna fram vegna þess að þjóðsöngurinn hafi ekki verið sunginn á hátíðinni í fyrrasumar. Þetta hafi átt að vera vargnagli sem ætti ekki að skaða nokkurn mann. Enn fremur sagði Þröstur að það virtist orðið eitthvað „púkó“ að syngja þjóðsönginn vegna þess að guð sé nefndur í textanum. Ef þjóðsöngurinn væri ekki við hæfi á þjóðhátíðardaginn sjálfan, hvenær þá? Hneykslan fyrrverandi ráðherra Auk margra annarra hafa að minnsta kosti tveir fyrrverandi ráðherrar lagt orð í belg vegna málsins. Annars vegar er það heimamaðurinn og Framsóknarmaðurinn Jón Kristjánsson, fyrrverandi heilbrigðis og félagsmálaráðherra. Á samfélagsmiðlum segist Jón hissa á því að tillagan hafi verið felld. Heimamaðurinn Jón Kristjánsson kann vel að meta þjóðsönginn og hefur aldrei viljað skipta honum út fyrir annað lag.Alþingi „Þjóðsöngurinn og þjóðfáninn eru tengd þjóðhátíðardeginum böndum sem ég hélt að væru órjúfanleg,“ segir hann. „Það var stundum nefnt við mig þegar ég var á Alþingi að það yrði að skipta um þjóðsöng, en ég sagðist aldrei styðja það. Það er ekki langt síðan landskunnur tónlistarmaður sagði í mín eyru í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni að þjóðsöngurinn væri glæsilegt tónverk, en menn hefðu tilhneigingu til þess að syngja hann í of hárri tóntegund. Ég trúi því ekki að upphafið, að nefna guð geti fælt menn svo frá að það þurfi að hætta að flytja þetta hátíðlega tónverk. Kannski er maður að verða gamall, en mér finnst hátíðleiki ekki vera úreltur.“ Hins vegar er það Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamála og dómsmálaráðherra, og samflokksmaður Berglindar Hörpu í Sjálfstæðisflokknum. Á síðu sinni bjorn.is segir hann að frétt Morgunblaðsins um þjóðsöngsmálið hafi gert hann orðlausan. Björn Bjarnason segist orðlaus yfir fréttunum.Friðrik Þór „Eitt er að syngja ekki þjóðsönginn 17. júní vegna getu- eða áhugaleysis, annað að samþykkja í byggðarráði að gera það alls ekki,“ segir Björn. Fallegur og hátíðlegur Berglind Harpa segir að hvorki hún né byggðarráð sé á móti því að þjóðsöngurinn verði sunginn á hátíðarhöldunum á Egilsstöðum. Bendir hún á að í Múlaþingi séu fjórir byggðakjarnar og hún sé ekki inni í dagskránni á hverjum stað. Aðspurð um hvort einhverjir hafi orðið skúffaðir yfir því að þjóðsöngurinn hafi ekki verið sunginn í fyrrasumar segist hún ekki hafa heyrt af því. Sjálf hafi hún ekki verið viðstödd hátíðarhöldin á Egilsstöðum í fyrra og verði það ekki í ár heldur. „Auðvitað er hátíðlegt að syngja þjóðsönginn og um að gera það sem víðast á 17. júní, ekki spurning,“ segir Berglind Harpa. „Hann er fallegur og hátíðlegur.“
Múlaþing Tónlist 17. júní Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Sjá meira