Svona vill Þórólfur hafa umgengnina í ræktinni

Á morgun verður slakað töluvert á takmörkunum innanlands þar sem faraldurinn er „í mikilli lægð“ líkt og sóttvarnalæknir orðar það í minnisblaði sínu til ráðherra. Þar fer hann ítarlega yfir tillögur um hvernig beri að haga sér í ræktinni.

Eftir æfingu þurfa allir að sótthreinsa hendur og þann búnað sem þeir hafa notað.
Eftir æfingu þurfa allir að sótthreinsa hendur og þann búnað sem þeir hafa notað.
Auglýsing

Í nýjasta minn­is­blaði Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis kennir ýmissa grasa að vanda enda leggur hann í því til tölu­verðar tak­mark­anir á gild­andi regl­um. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur gefið út reglu­gerð í sam­ræmi við til­lögur hans og taka hinar nýju reglur um sam­komur fólks hér á landi gildi þegar á morg­un.



Breyt­ing­arnar eru fjöl­margar en hér verður sér­stak­lega fjallað um þær sem snerta lík­ams­rækt­ar­stöðvar en þær, líkt og vín­veit­inga­staðir lúta sér­stökum tak­mörk­unum vegna sér­stakrar smit­hættu. Í þriðju bylgju far­ald­urs­ins komu stór hópsmit upp bæði á krá og í lík­ams­rækt­ar­stöð.

Auglýsing



Í reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra segir að gesta­fjöldi á heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvum og sund- og bað­stöðvum skuli aldrei vera meiri en 75 pró­sent af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta sam­kvæmt starfs­leyfi. Sé hámarks­fjöldi ekki skráður í starfs­leyfi skal miða gesta­fjölda við helm­ing þess fjölda sem bún­ings­klefar gera ráð fyr­ir. Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með í gesta­fjölda.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir Mynd: AlmannavarnirÍ hverju rými skulu ekki vera fleiri en að hámarki 50 manns. Skulu við­skipta­vinir skráðir fyr­ir­fram og skal sótt­hreinsa tæki og áhöld á milli not­enda. Áfram gildir tveggja metra nálægð­ar­regla. Tekið er fram í reglu­gerð­inni að sótt­varna­læknir gefi út nán­ari leið­bein­ing­ar.



Í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra er nokkuð langur kafli um til­lögur Þór­ólfs að umgengni í lík­ams­rækt­ar­stöðv­um. Sam­kvæmt þeim þurfa gestir t.d. að sótt­hreinsa hendur að minnsta kosti þrisvar á meðan heim­sókn þeirra stendur og ekki dvelja í hús­inu lengur en í níu­tíu mín­út­ur.



Til­lögur Þór­ólfs eru eft­ir­far­andi:



a. Sótt­hreinsun bún­aðar á milli not­enda verði á ábyrgð rekstr­ar­að­ila.



b. Tækja­sölum skuli skipt í rými þar sem 50 manna hámark sé í hverju rými. Gæta skuli að 2ja metra nálægð­ar­reglu og þess gætt að loft­ræst­ing sé góð.



c. Allir séu fyr­ir­fram­skráðir í tíma þannig að skrán­ing sé til yfir hver var hvar og hvenær og smitrakn­ing því auð­veld.



d. Hver tími sé að hámarki 60 mín­útur og við­vera hvers iðkanda í húsi sé því aldrei lengri en 90 mín­út­ur.



e. Við komu í hús sé tryggt að allir sótt­hreinsi hendur og beri grímur þar til æfing hefst.



f. Eftir æfingu sótt­hreinsi allir hendur áður en bún­aður er sótt­hreins­að­ur.



g. Eftir æfingu (þegar hendur hafa verið sótt­hreins­að­ar) sótt­hreinsi allir þann búnað sem þeir not­uðu. Rekstr­ar­að­ili ber ábyrgð á sótt­hreinsun bún­að­ar.



h. Við útgöngu sótt­hreinsi fólk hend­ur.



i. Engir tveir tímar liggja saman svo tveir hópar eru ekki að mæt­ast í rýmum húss­ins, eins og and­dyri.



j. Milli hópa séu sal­erni, vaskar og aðrir snertifletir sótt­hreins­aðir af starfs­manni.



k. Í sam­eig­in­legum rýmum skal tryggja 2ja metra nálægð­ar­reglu og þegar því verður ekki við komið skal and­lits­gríma not­uð.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent