Orðspor Íslendinga bíði hnekki eftir hroðalegt dýraníð Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. nóvember 2021 13:06 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur barist fyrir því að blóðtöku mera á Íslandi verði hætt. Vísir/Vilhelm Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að orðspor Íslands bíði hnekki eftir heimildarmyndina sem sýnd var í gær, þar sem varpað var ljósi á slæma meðferð á íslenskum hryssum við blóðtöku. Hún vill að starfsemin verði bönnuð og að stjórnvöld komi til móts við bændur sem hafi reitt sig á starfsemina. „
Þetta eru gríðarlegir orðsporshnekkir fyrir okkur sem þjóð. Gríðarlegir. Við sjáum líka þarna í myndinni að forstjóri Ísteka reynir ekki bara að koma í veg fyrir að myndin sé birt, heldur er hann greinilega staddur á þessum sérstaka bæ þar sem myndin er aðallega tekin,“ segir Inga og talar þar um Arnþór Guðlaugson, forstjóra Ísteka. Ísteka er líftæknifyrirtæki sem ber ábyrgð á blóðtöku mera á Íslandi. Blóðið er tekið úr fylfullum hryssum og unnið úr því hormón sem síðan er notað til að auka frjósemi svína til manneldis. Óafsakanlegt „Við, íslenska samfélagið, höfum kostað milljörðum króna í landkynningu fyrir okkur og bjóða okkar gestum og ferðamönnum heim að sækja okkar fallega og hreina land, og fest sig ásýnd. Orðsporshnekkir sem koma núna fram eru bara óafsakanlegir. Þetta er ekkert sem við getum ekki lagt af og komið þá til móts við þá bændur sem eru góðir bændur og virkilega langar að vera í sveitinni sinni. Íslenska ríkið skal þá bara gjöra svo vel að aðstoða þá við að geta lifað af sínum bújörðum,“ segir Inga. Inga, fyrir hönd Flokks fólksins auk tveggja þingmanna Pírata, lagði í mars fram frumvarp þar sem hún lagði til bann við blóðtöku mera hér á landi. Frumvarpið fékk hins vegar lítinn gaum á þingi. Inga telur að þar séu þrýstihópar og hagsmunaöfl að baki. Ekkert annað en dýraníð „Það eru miklir hagsmunir þarna undir og svona sterkir þrýstihópar sem hafa kannski getað haft áhrif, ætli það sé ekki meginástæðan. En hins vegar þá dregur þessi mynd raunveruleikann fram í dagsljósið – að minnsta kosti raunveruleikann hvað lítur að einhverjum sem stundar þennan svokallaða blóðmerabúskap.“ Hún ætlar að leggja fram nýtt frumvarp um leið og nýtt þing kemur saman. „Þetta er ekkert annað en dýraníð. Bara hroðalegt dýraníð. Þetta fer í algjöran forgang hjá okkur og ég er núna að leita eftir dýravinum á Alþingi Íslendinga sem vilja vera með okkur í málinu.“
Dýr Dýraheilbrigði Hestar Blóðmerahald Flokkur fólksins Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Sjá meira