Nýtt tilboð komið frá Katar Smári Jökull Jónsson skrifar 25. mars 2023 10:27 Marcus Rashford og Bruno Fernandes fagna hér marki fyrir Manchester United sem gæti fengið nýja eigendur von bráðar. Vísir/Getty Sjeik Jassim Al Thani hefur lagt fram nýtt tilboð í Manchester United en fjórir aðilar berjast nú um að kaupa enska stórliðið af Glazer fjölskyldunni.
Frestur til að leggja fram tilboð í United rann út á miðvikudagskvöldið en uppi varð fótur og fit þegar í ljós kom að hvorki Sjeik Jassim né Jim Ratcliffe höfðu lagt fram tilboð áður en fresturinn var úti. Fyrirtækið Raine Group sér um söluna á United en samkvæmt BBC fóru bæði Sjeik Jassim og Ratcliffe fram á aukinn frest til að leggja fram ný tilboð, sem Raine samþykkti. BBC telur að atburðarásin hafi skotið stuðningsmönnum United skelk í bringu en mikil óánægja hefur lengi verið í þeirra röðum með Glazer fjölskylduna sem eigendur. Auk Sjeik Jassims og Jim Ratcliffe hafa finnski athafnamaðurinn Thomas Zillacus og bandaríski fjárfestingasjóðurinn Elliott Management lagt fram tilboð í enska stórliðið en tilboð þeirra síðarnefndu snýst um að kaupa lítinn hluta í félaginu. Elliott Management hefur einnig boðið öðrum tilboðshöfum aðstoð með fjármögnun vegna hugsanlegra kaupa. Hinn finnski Thomas Zillacus vill kaupa helmginshlut í United á móti stuðningsmönnum. Þá hefur hann einnig biðlað til Sjeik Jassims og Ratcliffe að taka höndum saman og tryggja nægilegt fjármagn til leikmannakaupa og enduruppbyggingar Old Trafford. Nú greinir greina breskir miðlar frá því að Sjeik Jassim hafi lagt fram nýtt og betrumbætt tilboð líkt og Ratcliffe gerði á fimmtudagskvöld. Simon Stone, blaðamaður á BBC, segir að Sjeik Jassim og hans fólk sé sannfært um að tilboð þeirra sé það besta fyrir United og samfélagið í heild Second bid from Sheikh Jassim has gone in. Camp remain confident and believe this bid is best one for @ManUtd and local community.— Simon Stone (@sistoney67) March 25, 2023 Talið er að tilboðin munu hljóða upp á nýtt heimsmet en hæst hafa verið greiddir 3,71 milljarðar punda fyrir íþróttafélag þegar NFL-félagið Carolina Panthers var selt.
Enski boltinn Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Dagskráin í dag: PGA-meistaramótið í golfi, úrslit í körfu karla og margt fleira Sport Fleiri fréttir Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Sjá meira