Slökkvilið, lögregla og sjúkraflutningamenn voru kallaðir til í hádeginu þegar tilkynnt var um eld á vinnusvæði við hliðina á Hörpu í miðbæ Reykjavíkur.
Þegar þangað var komið reyndist um minni háttar eld að ræða í krana á vinnusvæði.
Vinnumenn á svæðinu náðu sjálfir að slökkva eldinn.