Halldór Jóhann: Það eru ekki mörg lið sem vinna Gróttu með níu mörkum Kristín Björk Ingimarsdóttir skrifar 25. nóvember 2021 21:20 Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss í handbolta var sáttur með 9 marka sigur á Gróttu í frestuðum leik Olís-deildar karla. Selfyssingar voru með forskotið nánast allan leikinn og sigruðu örugglega, 32-23. „
Það var bara ansi margt sem ég er ánægður með. Við vorum frábærir varnarlega allan leikinn. Það er ekki auðvelt að spila á móti Gróttu. Þeir spila mikið 7 á 6 og við vorum þolinmóðir og vorum með góðan hóp til að vinna í því. Við gerðum nánast allt sem við ætluðum okkur að gera og það skilaði okkur frábærum níu marka sigri. Það eru ekki mörg lið sem vinna Gróttu með níu mörkum, þeir eru með mjög agað lið og við vorum bara klárir í dag.“ Aðspurður hvort þetta hafi verið það sem lagt var upp með fyrir leikinn sagði Halldór þetta: „Við fórum aðeins í gegnum okkar mál eftir ÍBV leikinn og síðustu vikur. Við ætluðum að spila góða vörn og það var aðalatriðið í dag. Að fá hraða í leikinn og hlaupa, við gerðum það. Við spiluðum frábæra vörn og hlupum upp völlinn. Mér fannst heildarbragurinn á liðinu frábær í dag og því er ég ótrúlega ánægður.“ Ertu sáttur með hvar þið standið í deildinni? „Við erum ekki sáttir hvar við stöndum í deildinni. Við vissum að það yrði bras fram eftir líka. Við erum að fá marga leikmenn inn og það tekur tíma fyrir þá að koma sér í stand. Við höfum verið undir pari og ætlum okkur ekki það. Við eigum töluvert inni og við ætlum að vinna eitthvað.“ Næsti leikur Selfyssinga er á móti KA og vill Halldór sjá strákana eiga svipaðan leik eins og í kvöld. „Við höldum bara áfram. Sýnum þessa vinnusemi sem við sýndum í dag. Við vorum á staðnum allan tímann og héldum fókus. Það voru ekki þessar sveiflur í leik okkar sem hafa einkennt liðið í vetur. Við þurfum að halda því, það verður erfitt að fá KA hérna í heimsókn og við þurfum að spila góðan leik til þess að vinna.“
UMF Selfoss Olís-deild karla Handbolti Tengdar fréttir Leik lokið: Selfoss - Grótta 32-23 | Selfyssingar sigruðu í frestuðum leik Selfyssingar tóku á móti Gróttu í frestuðum leik frá 6. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Jafnræði með liðunum til að byrja með. Selfyssingar tóku svo forskotið og létu það ekki af hendi. Lokatölur 32-23. 25. nóvember 2021 18:45 Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Viðar Örn í KA Íslenski boltinn Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Enski boltinn „Veit að Kobe væri stoltur af mér“ Körfubolti Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi Sjá meira
Leik lokið: Selfoss - Grótta 32-23 | Selfyssingar sigruðu í frestuðum leik Selfyssingar tóku á móti Gróttu í frestuðum leik frá 6. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Jafnræði með liðunum til að byrja með. Selfyssingar tóku svo forskotið og létu það ekki af hendi. Lokatölur 32-23. 25. nóvember 2021 18:45