Hannes býst við hörkuleik: Þeir slátruðu deildinni í fyrra Valur Páll Eiríksson skrifar 21. júlí 2021 19:31 Hannes býst við erfiðum leik gegn sterkum andstæðingi annað kvöld. Vísir Hannes Þór Halldórsson, markvörður Vals, hlakkar til þess að mæta sínum gömlu félögum í Bodö/Glimt frá Noregi en liðin eigast við í Sambandsdeild Evrópu að Hlíðarenda annað kvöld. „
Við verðum náttúrulega bara að ná upp góðum leik, eins og alltaf þegar þú ert að spila gegn sterkum andstæðingi í Evrópukeppninni. Við erum búnir að fara vel yfir þeirra lið í dag og vitum að þetta verður mjög erfitt,“ segir Hannes. Bodö/Glimt rúllaði nokkuð óvænt yfir norsku deildina í fyrra en féll úr leik fyrir pólska liðinu Legía Varsjá í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar á dögunum, og eru þess vegna með Val í Meistaradeildinni. „Þeir slátruðu norsku deildinni í fyrra og sú deild er náttúrulega sterkari heldur en okkar. Þannig að þetta verður mjög erfiður leikur við gott lið, en þeim hefur aðeins fatast flugið síðan í fyrra þannig að það eru möguleikar í þessu.“ segir Hannes. Misjöfn spilamennska gegn Dinamo og ÍA Á meðan Bodö féll úr keppni fyrir Legía, féll Valur sömuleiðis úr keppni fyrir króatíska stórveldinu Dinamo frá Zagreb. Valsmenn töpuðu fyrri leiknum 3-2 ytra en þeim síðari 0-2 á Hlíðarenda þar sem þeir spiluðu vel og hefðu hæglega getað sett mörk í þeim leik. Hannes segir Valsmenn taka jákvæða hluti úr þeim leik. „Engin spurning. Við vorum ánægðir með frammistöðuna þar þrátt fyrir að vera svekktir með úrslitin og að leka inn marki þarna í lokin líka, þá var virkilega margt fínt í þeim leik og þar sýndum við okkur sjálfum að við getum alveg staðið í sterkum liðum. Ef við hittum á daginn okkar þá er allt hægt í þessu. En við sýndum það líka í næsta leik þar á eftir uppi á Skaga að við getum alveg dottið niður á lágt plan líka. Svo nú þurfum við að kveikja á öllu sem hægt er að kveikja á til þess að hitta á góðan leik á morgun og þá eru möguleikar í þessu.“ segir Hannes en Valur tapaði óvænt fyrir botnliði ÍA á Skipaskaga í Pepsi Max-deildinni um helgina. Klippa: Hannes Þór fyrir Bodö/Glimt Ekki sama lið og þegar Hannes var þar á mála Hannes mun mæta sínum gömlu félögum, en hann lék með Bodö á láni frá NEC í Hollandi þegar hann var að jafna sig af axlarmeiðslum í aðdraganda Evrópumótsins í Frakklandi 2016. „Ég átti mjög ánægjulegan tíma þarna. Þetta voru fjórir mánuðir þar sem ég var á láni rétt fyrir EM, svona að koma mér í fínt stand og ég kynntist þessum klúbb ágætlega. Þetta er frekar lítið lið í norska boltanum í rauninni, það er eitthvað ótrúlegt sem gerðist þarna í fyrra þar sem að þeir hafa greinilega hitt á einhverja svakalega blöndu, fara úr því að vera lið sem er kannski að rokka milli úrvalsdeildar og fyrstu deildar yfir í það allt í einu að rústa deildinni og næstum slá út AC Milan í Evrópukeppninni. Þeir hitta á eitthvað en ekki það sem maður hefði búist við þegar ég var þarna, þá var þetta bara svona lið sem er yfirleitt fyrir neðan miðju,“ segir Hannes en viðtalið við hann má sjá að ofan. Valur og Bodö/Glimt eigast við í forkeppni Sambandsdeildarinnar annað kvöld klukkan 19:00 að Hlíðarenda. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst bein útsending klukkan 18:45.
Sambandsdeild Evrópu Valur Mest lesið „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Dagskráin í dag: Fótbolti, golf og margt fleira Sport Fleiri fréttir Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Sjá meira