Ronaldo byrjar á bekknum

Cristiano Ronaldo er á meðal varamanna í kvöld.
Cristiano Ronaldo er á meðal varamanna í kvöld. AFP/Patrice de Melo

Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo er á meðal varamanna hjá portúgalska landsliðinu sem mætir Sviss í 16-liða úrslitum HM í Katar í Lusail.

Ronaldo hefur byrjað alla þrjá leiki portúgalska liðsins á heimsmeistaramótinu til þessa og skorað í þeim eitt mark.

Eftir að Portúgal tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum gerði portúgalski fjölmiðillinn A Bola skoðanakönnun á vef sínum þar sem spurt var hvort Ronaldo ætti að vera í byrjunarliði gegn Sviss í 16-liða úrslitunum.

70 prósent vildu sjá Ronaldo á bekknum á meðan 30 prósent vildu sjá Ronaldo í byrjunarliðinu.

Leikur Portúgals og Sviss hefst klukkan 19 og verður honum lýst beint á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert