Slökkviliðið í þremur útköllum

Mikið er um að vera hjá slökkviliðinu.
Mikið er um að vera hjá slökkviliðinu. mbl.is/Eyþór

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnir nú þremur útköllum. Þetta segir Guðjón Guðjónsson, aðstoðarvarðstjóri í samtali við mbl.is.

Eldur kviknaði í þurrkara inni á baðherbergi í Smárahverfinu í Kópavogi. Eldurinn var slökktur með slökkvitæki og þarf slökkviliðið að reykræsta.

Tilkynning barst um reyk í Glæsibæ. Dælubíll var að lenda á vettvangi þegar blaðamaður náði tali af Guðjóni og voru því ekki frekari upplýsingar að fá um það mál á þeirri stundu.

Þá barst tilkynning um gaslykt í Fellahverfinu. Var slökkviliðið sömuleiðis enn að kanna málið og fengust ekki frekari upplýsingar um stöðu mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert