Skúli Gunnar Sigfússon sem jafnan er kenndur við Subway fær ekki bætur frá KPMG vegna ráðgjafar í tengslum við skiptingu Eggert Kristjánssonar hf. og ráðstöfun fasteignar sem var í eigu félagsins.
Um er að ræða niðurstöðu Landsréttar sem staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í mars á síðasta ári.
Málið var höfðað í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í máli þrotabús EK1923 (áður Eggert Kristjánsson hf.) gegn Sjöstjörnunni vegna ráðstöfunar á fasteign EK1923 að Skútuvogi 3 til Sjöstjörnunnar. Var Sjöstjörnunni gert að greiða 324 milljónir auk vaxta, samtals vel yfir hálfan milljarð, vegna málsins.
Þegar málið var þingfest kom fram að Skúli teldi að ekki hafi verið rétt staðið að ráðstöfun þessara fasteigna á sínum tíma og að sökin væri endurskoðendaskrifstofunnar KPMG.
Hérðasdómur Reykjavíkur komst þó að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið sýnt fram á að starfsmenn KPMG hafi sýnt af sér saknæma háttsemi í tengslum við skiptingu félagsins og ráðstöfun fyrrgreindrar fasteignar.
Segir í dómnum að það sé grunnskilyrði þess að bótaábyrgð geti komið til álita og af þeirri ástæðu var KPMG sýknað af kröfum Skúla, eða Sjöstjörnunni. Þessa niðurstöðu héraðsdóms staðfesti Landsréttur með vísan í forsendur fyrirliggjandi dóms.