Shearer æsti sig: Við erum að tala um líf eða dauða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2020 10:31 Það leit út fyrir að David Luiz væri í engu ástandi til að halda áfram en hann fékk samt að fara aftur inn á völlinn. EPA-EFE/Catherine Ivill Árið er 2020 en samt fékk Arsenal maðurinn David Luiz að fara aftur inn á völlinn í gærkvöldi þrátt fyrir að hafa skömmu áður fengið slæmt höfuðhögg. Upptendraður Alan Shearer kallaði eftir breyttum vinnubrögðum.
Margir hafa hneykslast á því af hverju Arsenal maðurinn David Luiz fékk að fara aftur inn á völlinn eftir höfuðhöggið sitt í gær. Höfuðhögg í kappleikjum eru lífsins alvara og rangar ákvarðanir geta haft langvarandi slæmar afleiðingar fyrir íþróttafólkið bæði innan sem utan vallar. Þetta vita allir í dag og því hefur atvikið í lokaleik gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni vakið upp hörð viðbrögð. Raul Jimenez og David Luiz skullu illa saman í leik Arsenal og Úlfanna í ensku úrvalsdeildinni sem endaði með því að Raul Jimenez var fluttur burt í sjúkrabíl. David Luiz kom hins vegar aftur inn á völlinn með hausinn allan vafinn en var síðan skipt útaf í hálfleik. Það er í raun óskiljanlegt að Brasilíumaðurinn hafi fengið að spila áfram eftir þetta mikla höfuðhögg. Raul Jimenez had to be stretchered off against Arsenal after a clash of heads with David Luiz.Get well soon pic.twitter.com/Td0o0PK5LB— B/R Football (@brfootball) November 29, 2020 Arsenal sagðist hafa fylgt öllum reglum en það blæddi í gegnum vafninginn sem var utan um allt höfuð David Luiz þegar hann kom aftur inn á völlinn. Alan Shearer ræddi þessi mál í þættinum „Match of the Day“ hjá breska ríkisútvarpinu í gærkvöldi. Markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar var allt annað en sáttur með það sem hann varð vitni af í gær. Alan Shearer er ekki í vafa um það að það þurfi að passa betur upp á leikmenn þegar kemur að höfuðhöggum á fótboltavellinum. Shearer hefur einnig verið í fararbroddi í umræðunni um heilabilun sem er mun algengari meðal gamalla fótboltamanna en hjá öðrum. „Við erum að tala um líf eða dauða hérna. Við erum að tala um feril leikmanna og hvernig þeir geta orðið að engu. Þetta er ekki boðlegt og hefur verið í gangi alltof lengi,“ sagði Alan Shearer. „Það hefur verið umræða um að gera tilraunir með höfuðhöggsvaramenn en hvað þarf að prófa þar? Af hverju er slíkt ekki orðið að veruleika núna? Við höfum séð fund eftir fund eftir fund. Það þarft ekkert að prófa þetta. Við þurfum bara að taka þetta upp,“ sagði Shearer en það má sjá umræðuna um höfuðhöggin hér fyrir neðan. "It is not acceptable."@markchapman, @alanshearer and @jjenas8 discuss concussion protocol in football - and what needs to change.#MOTD2 pic.twitter.com/7y87l8Ok4u— Match of the Day (@BBCMOTD) November 29, 2020
Enski boltinn Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Í beinni: Valur - Afturelding | Valsmenn mættir eftir Evrópuævintýrið Handbolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fleiri fréttir Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Sjá meira