„Á ekki von á því að vera áfram í Njarðvík“ Atli Arason skrifar 10. maí 2021 22:25 Einar er líklega að hætta með Njarðvík. vísir/bára Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur býst ekki við því að vera áfram þjálfari Njarðvíkur á næsta tímabili. „
Ég á ekki von á því. Samningur minn er búinn og ég fer bara núna á morgun að huga að því að skoða mína möguleika. Mér finnst samt það [að vera áfram þjálfari Njarðvíkur] ólíklegt miðað við stöðu mála. Ég á síður von á því,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. Einar hefur verið þjálfari Njarðvíkur síðustu þrjú tímabil. Njarðvík var um tíma að horfa til þess að geta mögulega fallið úr efstu deild eftir 50 ára samfellda veru í deildinni. „Ég er hrikalega stoltur af þessum strákum. Það eru einhverjir tíu dagar síðan við vorum í tólfta sæti. Án þess að kasta rýrð á nokkurt annað félag þá er það erfiðara fyrir Njarðvíkinga að vera í tólfta sæti en það er fyrir all flesta aðra. Við gerum okkur alveg grein fyrir kröfunum, væntingunum, sögunni, hefðinni og öllu því. Í ljósi þeirrar stöðu, í ljósi þess að þegar það virkilega á móti blés þá var sótt fast að okkur og ég er hrikalega stoltur af þessum 17 manna teymi sem er hérna. Það er búið að standa þétt saman í gegnum mikinn brotsjó. Að standa uppi eftir þetta mót með þessa þrjá sterku sigra, vinna fjóra leiki af þessum síðustu sex. Ég ætla bara að vera stoltur af strákunum fyrir það,“ bætti Einar við. „Vonbrigðin eru gríðarleg. Auðvitað er það markmið hjá klúbbnum að fara í úrslitakeppni, enginn spurning. Við verðum eflaust fram eftir sumri að svekkja okkur á því. Það má spyrja sig af því af hverju þetta lið sem spilaði svo frábærlega í síðustu leikjum hafi ekki gert það alltaf en það er margt sem spilar þar inn í. Við vorum með lykilmenn í meiðslum sem að voru líka kannski ekki upp á sitt besta á köflum. Auðvitað finna menn líka pressuna. Ég ætla að leyfa mér að hrósa mínu uppeldisfélagi, við erum stórt vörumerki í íslenskum körfubolta ekkert ólíkt því sem Liverpool og Manchester United er í enskum fótbolta. Það er fullt af fólki sem hlakkar yfir því að okkur gengur ekki vel. Menn fundu það alveg, það voru ekki allir með okkur. Þess vegna er ég bara stoltur af strákunum, það er hægt að týna það til að einn sigur hefði dugað okkur inn í úrslitakeppnina og já við munum svekkja okkur á því. Það voru held ég átta leikir sem við töpuðum með 5 stigum eða minna í vetur. Það er svekkjandi að hugsa til þess í dag en ég ætla að leyfa mér í kvöld að vera stoltur af strákunum og gleðjast með þeim yfir því að hafa þó klárað sín þrjú verkefni og sett allavegana örlögin í okkar hendur,“ sagði hrærður Einar Árni Jóhannsson í viðtali eftir 15 stiga sigur Njarðvíkur á Þór Þorlákshöfn í lokaleik tímabilsins.
UMF Njarðvík Dominos-deild karla Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Þórsara dreymir um heimavallarrétt Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir
Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti