Innlent

36 greindust með Covid-19 innanlands í gær

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Áfram greinast nokkrir tugir á degi hverjum.
Áfram greinast nokkrir tugir á degi hverjum. Vísir/Vilhelm

36 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 346 eru nú í einangrun og 1.170 í sóttkví.

Af þeim sem greindust voru 25 í sóttkví og ellefu utan sóttkvíar. 24 voru fullbólusettir og tólf óbólusettir.

Enginn greindist með með Covid-19 á landamærunum í gær samkvæmt tölum á Covid.is.

Sjö liggja inni á Landspítalanum vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu.

Alls hafa 274.497 einstaklingar verið fullbólusettir gegn Covid-19 og 47.367 fengið örvunar- eða viðbótarskammt.

Fjórtán daga nýgengi á hverja 100 þúsund íbúa er 108,5. Alls hafa 11.594 greinst með Covid-19 hér á landi frá því að faraldurinn hófst.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×