Þing kemur saman eftir óvenjulangt hlé Atli Ísleifsson skrifar 23. nóvember 2021 07:52 Willum Þór Þórsson gegnir hlutverki forseta Alþingis þessa dagana. Vísir/Vilhelm Nýtt löggjafarþing kemur saman í dag, það 152. í röðinni, og hefst að vanda með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13:30, áður en gengið verður yfir í þinghúsið og þingið sett.
Þing hefur nú ekki komið saman í um 140 daga og er því um að ræða lengsta þinghlé í rúma þrjá áratugi. Séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, mun prédika í guðsþjónustunni í Dómkirkjunni og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjóna fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Þá mun Kári Þormar, organisti Dómkirkjunnar, leika á orgel og Kammerkór Dómkirkjunnar syngja við athöfnina. Í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis segir að að guðsþjónustu lokinni gangi forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins. „Söngkonur úr Domus vox syngja við þingsetninguna, undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 152. löggjafarþing og starfsaldursforseti Alþingis, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, býður alþingismenn og ráðherra velkomna og minnist látins þingmanns og látins fyrrverandi ráðherra. Þá verður kosin kjörbréfanefnd. Þingsetningarfundi verður síðan frestað,“ segir í tilkynningunni. Undirbúningskjörbréfanefnd birtir greinargerðir Líkt og fram kemur verður kosin kjörbréfanefnd í dag. Þegar það liggur fyrir mun undirbúningskjörbréfanefndin, sem hefur verið að störfum síðustu vikurnar, birta greinargerðir sínar varðandi talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í þingkosningunum sem fram fóru 25. september síðastliðinn. Í frétt í gær kom fram að samkvæmt heimildum fréttastofu verði tvær leiðir lagðar fyrir þingið. Fyrst þá að samþykkja kjörbréf allra þingmanna nema þeirra sextán, sem eru annað hvort þingmenn í Norðvesturkjördæmi eða jöfnunarþingmenn, því lokatölur í kjördæminu sem óvissan snýst um getur breytt öllum jöfnunarmannakaplinum á þingi. Miklar líkur séu hins vegar á að sú tillaga verði felld en þá verði lögð fyrir þingið tillaga um að samþykkja öll 63 kjörbréfin.
Alþingi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir Allt of langt hlé og skaðlegt fyrir lýðræðið Lengsta hlé á störfum þingsins í rúma þrjá áratugi tekur enda á morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn óttast afleiðingar svo langs hlés fyrir lýðræðið en eru langt í frá spenntir að takast á við fyrsta verkefni komandi þings - kjörbréfamálið. 22. nóvember 2021 22:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Búast má við slyddu Veður Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Fleiri fréttir „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Sjá meira
Allt of langt hlé og skaðlegt fyrir lýðræðið Lengsta hlé á störfum þingsins í rúma þrjá áratugi tekur enda á morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn óttast afleiðingar svo langs hlés fyrir lýðræðið en eru langt í frá spenntir að takast á við fyrsta verkefni komandi þings - kjörbréfamálið. 22. nóvember 2021 22:01