Vill Víði áfram í íþróttamálum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. október 2020 14:09 Þórólfur og Víðir hafa verið í eldlínunni undanfarna mánuði og staðið hlið við hlið á mörgum upplýsingafundinum. Vísir/Vilhelm
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist ætla að óska eftir því við Víði Reynisson yfirlögregluþjón að hann haldi áfram hlutverki sínu í samskiptum og ákvarðanatöku varðandi íþróttamál í kórónuveirufaraldrinum. Víðir sé ómetanlegur í þeirri vinnu. Víðir viðurkenndi á upplýsingafundi almannavarna í gærað hafa farið út fyrir sitt valdsvið að veita Erik Hamrén og Frey Alexanderssyni, þjálfurum liðsins, heimild til þess að fylgjast með landsleik á Laugardalsvelli þrátt fyrir að vera í sóttkví. Starfsmaður landsliðsins hafði greinst með Covid-19 smit og allt starfsliðið sett í sóttkví. Átti ekki að veita leyfi Myndir náðust af þjálfurum við störf sín og var fjallað um málið á forsíðu Fréttablaðsins. „Þeir voru í sóttkví og ég taldi að það umhverfi sem allir starfsmenn landsliðsins væru í og við köllum vinnusóttkví væri nægjanlegt til að þetta væri heimilt. Sóttvarnalæknir hefur bent mér á í morgun að þetta sé ekki rétt og þeir hefðu ekki átt að fá þetta leyfi,“ sagði Víðir á upplýsingafundinum í gær. Þá sagði hann þetta óheppilegt í ljósi fyrri starfa hans fyrir KSÍ. Hann hefur verið öryggisfulltrúi karlalandsliðsins og ferðast með liðinu í leiki og keppnir erlendis. Út fyrir sitt valdsvið „Þetta eru undanþágur sem eru unnar í samvinnu við okkur og sóttvarnalækni. Það er sóttvarnalæknir sem gefur þær formlega út. Þannig að ég fór algjörlega út fyrir mitt valdsvið að gefa þessar undanþágur í gær.“ Aðspurður hvort einhver viðurlög yrðu við því svaraði Víðir: „Ég held að það sé augljóst að ég mun ekki tengjast meira úrlausnum íþróttamála á næstunni.“ Víðir og Þórólfur á upplýsingafundi á dögunum. Sá sem fram fór í gær var númer 124 í röðinni.Vísir/Vilhelm Þórólfur var spurður að því í dag hver tæki við keflinu af Víði. Ekki tilefni til að Víðir hætti „Það er ekki alveg ákveðið og ég á eftir að tala við Víði, því hann er alveg ómetanlegur í þessari vinnu. Það er vandséð hver getur tekið við af honum þar,“ segir Þórólfur. „Ég held að þessi hlutur sem kom upp þarna gefi ekki endilega tilefni til þess að hann hætti þeirri vinnu.“ Hann ætli að biðja Víði að halda áfram sínum störfum er varða íþróttamál. „Já, ég mun gera það.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Almannavarnir Lögreglan Tengdar fréttir Víðir tekur ekki fleiri ákvarðanir varðandi íþróttamál Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segist ekki munu koma frekar að ákvörðunartöku varðandi íþróttamál í kórónuveirufaraldrinum. 15. október 2020 15:03 Víðir segir KSÍ hafa brugðist: „Fyrst og fremst vonbrigði“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir það fyrst og fremst vonbrigði að starfsmenn karlalandsliðsins í fótbolta hafi verið í snertingu við leikmenn þvert á loforð KSÍ. 15. október 2020 11:48 Mistök að hafa leyft þjálfurunum að vera á leiknum Þjálfarar íslenska karlalandsliðsins í fótbolta hefðu ekki átt að fá leyfi til að vera á leiknum gegn Belgíu í gær. 15. október 2020 11:32 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Fleiri fréttir Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Sjá meira
Víðir tekur ekki fleiri ákvarðanir varðandi íþróttamál Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segist ekki munu koma frekar að ákvörðunartöku varðandi íþróttamál í kórónuveirufaraldrinum. 15. október 2020 15:03
Víðir segir KSÍ hafa brugðist: „Fyrst og fremst vonbrigði“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir það fyrst og fremst vonbrigði að starfsmenn karlalandsliðsins í fótbolta hafi verið í snertingu við leikmenn þvert á loforð KSÍ. 15. október 2020 11:48
Mistök að hafa leyft þjálfurunum að vera á leiknum Þjálfarar íslenska karlalandsliðsins í fótbolta hefðu ekki átt að fá leyfi til að vera á leiknum gegn Belgíu í gær. 15. október 2020 11:32