Sport

Katrín Tanja: Hef tilfinningu fyrir því að þetta verði sumar sem gleymist aldrei

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir með kærasta sínum Brooks Laich sem hún þakkaði sérstaklega fyrir frábæran stuðning.
Katrín Tanja Davíðsdóttir með kærasta sínum Brooks Laich sem hún þakkaði sérstaklega fyrir frábæran stuðning. Instagram/@katrintanja)

Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir er í skýjunum eftir frábæra frammistöðu um síðustu helgi þar sem hún tryggði sér sæti á heimsleikunum í haust.

Katrín Tanja hefur nú gert upp mótið og horfir afar spennt fram á veginn. Nú eru nokkrir mánuðir í heimsleikana og þar ætlar hún sér að undirbúa sig vel.

„Ég er að fara á mínu tíundu heimsleika í CrossFit. Ég hef bókstaflega brosað út að eyrum síðan þetta varð ljóst og síðustu daga hef ég stanslaust verið að segja Brooks Laich hversu hamingjusöm ég er. Við náðum þessu. Við fáum að fara aftur Madison og keppa um að verða best í heimi,“ skrifaði Katrín Tanja Davíðsdóttir á Instagram.

„Það er líka langt síðan að ég hef verið svona ánægð inn á keppnisgólfinu. Ég hélt einbeitingu, fékk sjálfstraust eftir góðan undirbúning og treysti sjálfri mér,“ skrifaði Katrín Tanja.

„Ég er svo spennt að geta byggt ofan á það sem við höfum núna. Ég hef tilfinningu fyrir því að þetta verði sumar sem gleymist aldrei. Skemmtilegasti tími ársins hjá mér er að æfa fyrir heimsleikana og ég get ekki beðið eftir að byrja vinnuna aftur,“ skrifaði Katrín.

Katrín þakkar öllum fyrir stuðninginn og þá sérstaklega kærastanum Brooks Laich. „Hann er kletturinn minn og minn helsti stuðningsmaður daginn út og inn,“ skrifaði Katrín eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×